Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 6
Stjörnuspá mánaðarins
Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt.
Þú lætur ekki þitt eftir liggja, og
manst eftir að ganga frá skærun-
um og límbandsstatífinu aldrei
þessu vant. Þú gefur öllum í fjöl-
skyldunni spiladósir í jólagjöf. Það bendir ýmislegt til að þú lend-
ir í talsverðum vatnavöxtum í des-
ember, annað hvort fyrir austan
eða þegar þú heimsækir einhvern
út á nes. Þú færð steypubíl í skóinn. Leggðu áherslu á að pakka öllum
jólagjöfunum þínum inn í hvítan
jólapappír með gylltum stjörnum
og setja á þá silfraða borða því þá
mun allt annað ganga upp hjá þér.
Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Krabbinn 22. júní - 22. júlí Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv.
Það eru talsvert margar jólakúlur í
stjörnukortunum hjá þér þessa
dagana sem ætti að gefa þér ein-
hverjar vísbendingar um hvað
muni gerast hjá þér á næstunni. Ungt fólk sem fætt er í krabba-
merkinu þarf að spyrja sig margra
spurninga upp úr tíunda desem-
ber. Íhugaðu að breyta algerlega
um stefnu á næstu gatnamótum. Þú færð alveg frábæra hugmynd í
jólagjafastússinu en gleymir henni
áður en þú kemur heim. Þú gerir
allt sem þú getur til að gleðja aðra,
sérstaklega fólk sem býr á Dalvík.
Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des.
Hrútar sem komnir eru með skalla
ættu að íhuga að fjárfesta í kollu
fyrir jólin. Aðrir hrútar eru áminntir
um að bursta í sér tennurnar, helst
með meðalmjúkum tannbursta. Mundu hvað þú gerðir við merki-
miðana frá því í fyrra áður en þú
kaupir fleiri. Leggðu áherslu á að fá
mótorhjól í jólagjöf og þá er aldrei
að vita nema einhver gefi þér skíði. Stjörnurnar gefa greinilega í skyn
að þú þurfir að búa þig undir eitt-
hvað sem annað hvort kemur eða
kallar þann átjánda. Ef þú átt bíl þá
þarftu að láta tékka á pönnunni.
Nautið 20. apríl - 20. maí Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Steingeitin 22. des. - 19. jan.
Ef þú heldur þig á mottunni meiri
hluta mánaðarins þá er aldrei að
vita nema þú fáir tólf-mánaða bíó-
kort í jólagjöf. Væri það ekki gaman?
Farðu út að hlaupa ef þér leiðist. Desember er ekki rétti tíminn til að
fá í bakið og því skaltu fresta því
fram í janúar. Þú lærir að prjóna og
gefur öllum sem þú þekkir græna
eða rauðleita lopasokka í jólagjöf. Það gengur allt upp hjá þér í des-
ember nema eitthvert plott varð-
andi einhvern Hallmund. Hættu
bara við það. Mundu að ganga
hægt inn um allar dyr. Gleðileg jól.
Minning mánaðarins
Michael og Kirk Douglas.
fram fyrir hendur einstaklinga
og setja þeim lög og reglur sem
jafnframt sviptu þá frelsi sínu.
Vintery, mintery, cutery, corn
Apple seed and apple thorn
Wire, briar, limber lock
Three geese in a flock
One flew East
One flew West
And one flew over the cuckoo’s nest
Um þessar mundir eru liðin
sextíu ár frá því að bandaríski
rithöfundurinn Ken Kesey hóf
aðeins 24 ára að aldri að skrifa
skáldsögu sína One Flew Over the
Cuckoo’s Nest, en hún átti eftir
að reynast tímamótaverk sem
átti stóran þátt í að breyta því
hvernig fólk leit á geðsjúkdóma
og þá sérstaklega hvernig tekið
var á þeim. Bókin vakti athygli en
um leið miklar deilur og var víða
bönnuð vegna þess hve mikla og
óvægna gagnrýni hún innihélt,
ekki bara á geðstofnanir og fólk
sem sinnti geðsjúkum heldur líka
á allt kerfið í heild sem vildi taka
6
Myndir mánaðarins
Einn af þeim sem lásu bókina
og hrifust mjög af henni var
Kirk Douglas sem ákvað að
kaupa réttinn af Ken til að setja
upp leikverk eftir henni með
sjálfum sér í hlutverki annarrar
aðalpersónunnar, Randles Mc-
Murphy, og síðan kvikmynda
hana ef honum tækist að fá til
þess fjármögnun. Leikverkið fór
upp en gerði það ekki gott og Kirk
tókst ekki að fá framleiðendur
til að fallast á að setja peninga í
kvikmyndunina auk þess sem þeir
féllust ekki á þær kröfur sem Kirk
gerði, t.d. varðandi það að hann
myndi sjálfur leika McMurphy. Svo
fór að hann neyddist til að leggja
áform sín á hilluna, án þess þó að
missa trú á að þessi saga yrði að
kvikmynd einn góðan veðurdag.
Nokkrum
árum
síðar
var
Kirk staddur í Prag og hitti
þar ungan tékkneskan kvik-
myndagerðarmann að nafni Milos
Forman sem þá hafði gert nokkrar
afar eftirtektarverðar myndir.
Kirk kunni vel að meta handverk
hans en ekki síður persónuleika
Milosar, áhuga hans, ákefð og
ástríðu. Kirk sagði honum að hann
ætti bók heima sem hann vildi fá
að senda honum og fá álit hans
á hvort hann héldi sig geta gert
mynd eftir henni. Bókin kom hins
vegar ekki og Milos hélt að Kirk
hefði einfaldlega gleymt þessu
eða misst áhugann. Svo var þó
ekki því það fyrsta sem Kirk gerði
þegar hann kom heim var að
póstleggja eintak af bókinni til
hans. Þegar ekkert svar barst frá
Milosi taldi hann að Milos hefði
einfaldlega ekki haft áhuga á
að skoða málið frekar. Hvorugur
áttaði sig á því að bókin hafði
verið gerð upptæk í tékkneska
tollinum þegar hún barst enda
höfðu þeir ekki samband aftur.
Mörg ár liðu og sonur Kirks,
Michael Douglas sem þá var að
hefja sinn leiklistar- og fram-
leiðsluferil, fékk mikinn áhuga á
sögunni. Faðir hans sagði honum
þá frá kynnum sínum af Milosi
en að hann hefði aldrei svarað
bréfinu sem hann sendi með
bókinni. Eitthvað hefur Michael
fundist grunsamlegt við það og
ákvað að hafa samband við Milos
og spyrja hann út í þetta. Þá fyrst
kom sannleikur málsins í ljós og
svo fór að Michael kom bókinni
loksins til hans eftir krókaleiðum.
Milos hreifst mjög af bókinni og
samþykkti að leikstýra myndinni
fyrir lágmarkslaun eins og reyndar
allir sem komu að gerð hennar og
léku í henni þurftu að gera. Með
þá samninga í höndunum tókst
Michael að tryggja nægilegt fé til
að hefjast handa og í nóvember
árið 1975, þrettán árum eftir að
Milos Forman.
Kirk hafði keypt kvikmyndaréttinn
var samnefnd mynd með Jack
Nicholson í aðalhlutverki frum-
sýnd. Hún sló algjörlega í gegn
á heimsvísu og varð tekjuhæsta
mynd ársins 1976 auk þess að
hljóta fjölmörg verðlaun, þar á
meðal fimm Óskarsverðlaun af
níu tilnefningum. Myndin þótti
og þykir enn snilldarverk í alla
staði og er frábært dæmi um
mynd sem þrátt fyrir að vera
orðin rúmlega fertug hefur ekki
elst neitt að innihaldi og er alltaf
jafngóð. Sennilega mun hún enn
vera það dæmi eftir önnur 40 ár.