Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 26
Searching – Álög drekans
Hvað kom fyrir Margot?
Þegar David Kim vaknar einn morguninn sér hann að 16 ára dóttir hans
Margot hefur þrisvar reynt að hringja í hann um nóttina. Þegar hún skilar
sér svo ekki heim um kvöldið og svarar ekki símanum kallar hann á lög-
regluna og hefst síðan sjálfur handa við að rannsaka hvað um hana varð.
Þar sem enginn af félögum Margotar veit neitt um ferðir hennar ákveður Kim að
brjótast inn í fartölvu hennar og skoða þau gögn sem þar eru, m.a. samskipti
hennar á samfélagsmiðlum, í von um að grafa upp vísbendingar um hvað hún
hafi verið að gera þegar hún hvarf. Með aðstoð lögreglukonunnar Rosemary Vick
tekur hann smám saman að raða saman brotunum og kemst að því um leið að
hann vissi í raun ekki neitt um dóttur sína, lífið sem hún lifði og gjörðir hennar ...
Punktar ..................................................................
HHHH 1/2 - Variety HHHH 1/2 - IGN HHHH - Wrap HHHH - IndieWire
HHHH - Empire HHHH - T. Out HHHH - R. Stone HHHH - H. Reporter
Searching hefur fengið afar góða
dóma margra gagnrýnenda, er með
7,1 í meðaleinkunn á Metacritic, 7,8 á
Imdb og 7,3 á Rotten Tomatoes.
l
Myndin hlaut áhorfendaverðlaunin
á Sundance-kvikmyndahátíðinni síð-
astliðinn vetur og þau Aneesh
Chaganty leikstjóri og Sev Ohanian
handritshöfundur hlutu Alfred P.
Sloan-verðlaunin á sömu hátíð.
l
102
VOD
mín
Aðalhlutverk: John Cho, Debra Messing, Joseph Lee og
Michelle La Leikstjórn: Aneesh Chaganty Útgef.: Sena
Spenna / Ráðgáta
Við mælum heilshugar með þessari
æsispennandi ráðgátu við alla sem
kunna að meta myndir þar sem reynir
á athyglisgáfu áhorfendans.
l
13. desember
John Cho leikur föðurinn David sem leggur
allt í sölurnar við að hafa uppi á dóttur sinni.
Lítil hetja – risastórt ævintýri
Nikki er strákur sem dreymir um að verða
stór og sterkur og takast á við dreka eins
og pabbi hans hafði gert einu sinni. Dag
einn er hann fluttur fyrir töfra inn í hið
ægifagra land drekanna og fær um leið
tækifæri til að láta drauma sína rætast.
Álög drekans kemur út á DVD og á sjónvarps-
leigunum 13. desember og er kjörin skemmtun
fyrir yngstu aldurshópana sem láta dreka ekki
hræða sig. Ferð Nikka inn í ævintýralandið á
nefnilega eftir að reyna verulega á hugrekki
hans því að það er eitt að láta sig dreyma um
hetjudáðir og annað að mæta alvörudreka!
Punktar ......................
Álög drekans er að sjálfsögðu talsett
á íslensku og á meðal þeirra sem ljá
persónunum raddir sínar eru Hjálmar
Hjálmarsson, Steinn Ármann Magnús-
son, Viktor Már Bjarnason, Þórhallur
Sigurðsson (Laddi), Hálfdán Helgi
Matthíasson, Álfrún Helga Örnólfs-
dóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Íris
Tanja Flygenring, Stefanía Svavars-
dóttir og Magnús Ólafsson.
l
DVD
VOD
85
mín
Íslensk talsetning Leikstjórn: Sigurður Árni Ólason
Útgefandi: Myndform
Teiknimynd
26
Myndir mánaðarins
13. desember
Myndin, sem er frá Úkraínu, hlaut
úkraínsku kvikmyndaverðlaunin í
fyrra sem besta teiknimynd ársins.
l