Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 14
Ófærð
Áður en leiðirnar opnast
Ófærð er margverðlaunuð spennuþáttaröð, sem hefur notið fádæma vin-
sælda alls staðar þar sem hún hefur verið sýnd. Gagnrýnendur í Bretlandi,
Frakklandi, Ástralíu, Japan og víðar hafa keppst um að hlaða hana lofi og
er sérstaklega til þess tekið hve hin vetrarlega íslenska umgjörð sé heill-
andi, sagan spennandi og skemmtileg og hvað þættirnir séu vel leiknir.
Um það leyti sem Norræna leggst að bryggju um hávetur, rekur sundurskorið lík
að landi. Á sama tíma skellur á óveður og allar leiðir úr og í bæinn lokast vegna
fannfergis. Andri (Ólafur Darri Ólafsson) og félagar hans í lögreglunni keppast
við að reyna að leysa málið áður en veðrinu slotar og vegir opnast að nýju, því
þeir vita sem er að þangað til kemst enginn burt, ekki einu sinni morðinginn ...
Punktar ..................................................................
Þessi veglegi DVD-pakki sem kemur út 6.
desember inniheldur að auki kynningarþátt
um þáttaröðina (Bakvið tjöldin) og stiklu.
l
Skjátextar sem fylgja eru á ensku, pólsku og
íslensku.
l
Fyrir utan að hljóta afbragsdóma gagnrýn-
enda hefur Ófærð verið margverðlaunuð og
hlaut m.a. PRIX Europa-verðlaunin sem besta
sjónvarpsþáttaröð ársins í Evrópu 2016.
l
Leikstjórar Ófærðar voru fjórir, Baltasar Kor-
mákur, Óskar J. Axelsson, Baldvin Zophonías-
son og Börkur Sigþórsson.
l
520
DVD
mín
Aðalhl.: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og
Ingvar E. Sigurðsson Leikstjórn: Sjá punkta Útgef.: Sena
Sakamál
6. desember
Dwayne Johnson var staddur í London 24.
nóvember þar sem verið var að taka upp atriði
í myndina Hobbs and Shaw en hún er svokallað
„spin-off“ frá Fast & Furious-myndunum.
14
Myndir mánaðarins
Þess má geta að nú er verið að leggja loka-
hönd á aðra þáttaröðina, Ófærð 2, en sýningar
á henni hefjast á RÚV 26. desember nk.
l
Það er hefð fyrir því að elda mat á götum úti um
þakkargjörðarhátíðina í Bandaríkjunum og gefa
þeim heimilislausu að borða. Kevin Hart lét sitt
ekki eftir liggja í Los Angeles 21. nóvember
Natalie Portman skartaði þessum glæsilega
kjól þar sem hún sótti viðhafnarkvöldverð í
boði bandarísku kvikmyndastofnunarinnar
5. nóvemer ásamt fjölmörgum kollegum.