Myndir mánaðarins MM Desember 2018 Bíóhluti | Page 12
Bíófréttir – Væntanlegt
12
Kubbamyndin The Lego Movie sló í gegn þegar
hún var frumsýnd í febrúar 2014 og gerði stjörnu
úr kubbakallinum Emmet Brickowski sem varð
óvart og óvænt aðalkubbakallinn í baráttu við
grimman og ægilegan einræðisherra sem ætlaði
sér að rústa veröld hans og annarra kubbakalla.
Sem betur fer naut Emmet aðstoðar Batmans
og fleiri og hlaut baráttan farsælan endi eins
og allir vita sem sáu þá skemmtilegu mynd.
Í febrúar verður svo framhaldsmyndin The Lego Movie 2: The Second
Part frumsýnd en hún gerist nokkrum árum eftir að allt varð frábært
aftur í fyrri myndinni og segir frá því þegar Lego Duplo-kubbar utan úr
geimnum gera árás á kubbaveröld Emmets og félaga og rústa henni.
Það sem er verra er að þeir ræna Lucy, bestu vinkonu Emmets, sem
þýðir að hann verður að smíða sér geimskip og fara út í geim að bjarga
henni. Allar helstu persónur fyrri myndarinnar snúa hér aftur ásamt leik-
urunum sem töluðu fyrir þær auk nýrra persóna, en um leikstjórnina í
þetta sinn sá Mike Mitchell sem gerði síðast teiknimyndina Tröll. Disneymyndin The Lion King varð vinsæl-
asta mynd ársins 1994 og er enn þriðja
tekjuhæsta mynd Disney frá upphafi (á
eftir Frozen og Zootropolis) og situr í dag
í 29. sæti listans yfir tekjuhæstu myndir
allra tíma. Í júlí á næsta ári mun Disney
frumsýna þessa frábæru mynd á ný sem
nú hefur verið endurgerð frá grunni
með nýjustu tölvu- og kvikmyndatækni
sem við þekkjum úr myndum eins og
endurgerðinni af Jungle Book frá árinu
2016. Fyrsta kynningarstiklan úr mynd-
inni var frumsýnd í nóvember og lofar góðu eins og búast mátti við og
verður gaman að sjá hvort myndin eigi eftir að gera enn betur en sú
fyrri í kvikmyndahúsum heimsins en við því má alveg búast. Á meðal
leikara sem tala fyrir helstu persónurnar í þetta sinn í ensku útgáfunni
eru Donald Glover, Beyoncé, Seth Rogen, Billy Eichner, Keegan-Michael
Key, Chiwetel Ejiofor, John Oliver, Alfre Woodard og James Earl Jones.
Í ágúst á næsta ári verður myndin Playmobil: The Movie frumsýnd en
hún er eins og flestir ættu nú þegar að hafa giskað á byggð í kringum
Playmobil-persónurnar sem allir þekkja enda hafa þessi leikföng notið
vinsælda um árabil eða allt frá því framleiðsla á þeim hófst árið 1974.
Þessi fyrsta mynd um ævintýri þessara persóna er í leikstjórn Linos
DiSalvo sem á langan feril að baki í gerð handunninna og teiknaðra
mynda og var t.d. aðalteiknari Disney-myndarinnar vinsælu, Frozen.
Engin stikla hefur enn verið frumsýnd þegar þetta er skrifað en að
því er okkur hér á Myndum mánaðarins skilst segir sagan frá hinni
mannlegu Mörlu sem heldur af stað í leit að yngri bróður sínum
Charlie, en honum hefur á einhvern hátt tekist að hverfa inn í veröld
Playmobil þar sem hvert ævintýrið rekur annað. Þar mun Marla fá
aðstoð frá nokkrum Playmobil-persónum við að hafa uppi á bróður
sínum, þ. á m. spæjaranum Rex Dasher sem Daniel Radcliffe talar fyrir.
Við kynnum þessa mynd að sjálfsögðu betur í næstu blöðum þegar
nánari upplýsingar liggja fyrir og fyrsta stiklan hefur verið frumsýnd. Fyrir utan þær myndir sem nefndar hafa verið hér á síðunni eiga kvik-
myndahúsagestir von á fjölmörgum áhugaverðum teikni- og hand-
gerðum myndum á næsta ári, t.d. leirbrúðumyndinni The Missing
Link sem myndin hér að ofan er einmitt úr. Hún er eftir Chris Butler
sem gerði m.a. myndina ParaNorman og fjallar um leit Lionels Frost
lávarðar og aðstoðarkonu hans, Adelinu Fortnight, að hinum týnda
hlekk í þróun mannkyns og finna hann í hinum sérstaka herra Link sem
haldið hefur til í Shangri-La þar sem tíminn líður ekki. Þessa mynd á
að frumsýna í apríl en á meðal annarra teikni- og handgerðra mynda
sem frumsýndar verða á árinu 2019 má nefna mynd númer tvö um litlu
gulu skósveinana (Minions), Secret Life of Pets 2, Toy Story 4, The Angry
Birds Movie 2, Frozen 2, How to Train Your Dragon: The Hidden World,
Hello Kitty, Ugly Dolls og Wonder Park, að ógleymdri myndinni Ótrúleg
saga um risastóra peru sem er byggð á samnefndri barnabók danska
rithöfundarins Jakobs Martin Strid, en sú mynd verður frumsýnd
í janúar og er kynnt nánar hér á bls. 16. Þessi upptalning inniheldur
auðvitað bara hluta af teikni- og handgerðum myndum næsta árs en
um þær allar munum við að sjálfsögðu fjalla betur í komandi blöðum.
Myndir mánaðarins