Myndir mánaðarins MM Apríl 2019 Bíóhluti | Page 14

Myndasyrpa Það var glatt á hjalla á South by Southwest-kvikmyndahátíðinni sem haldin var í Austin í Texas í mars, ekki síst hjá þessum fimm sem þarna standa fyrir framan aðdáendahóp við kynningu á myndinni Shazam! Sá skeggjaði er leikstjórinn David F. Sandberg en hinir fjórir, Mark Strong, Zachary Levi, Asher Angel og Jack Dylan Grazer, leika aðalhlutverkin. Sennilega kannast fáir lesendur við þessi tvö, þau Tobias Iaconis og Mikki Daughtry, en þau fá hér heiðursmyndbirtingu fyrir að hafa skrifað sögur og handrit tveggja af myndum aprílmánaðar, þ.e. Five Feet Apart og The Curse of La Llorona. Benedict Cumberbatch tók á dögunum þátt í hinni árlegu góðgerðarsöfnun í Bretlandi sem kennd er við Rauða nefið og lét sig ekki muna um að taka þeirri áskorun í leiðinni að demba sér með nefið út í ískalda tjörn í Hampstead-garðinum í London. Seth Rogen og Charlize Theron mættu með hvort annað upp á arminn á South by Southwest-hátíðina til að vera viðstödd sýningu á rómantísku gamanmyndinni Long Shot eftir Jonathan Levine þar sem þau leika gamla skólafélaga sem hittast á ný og verða ástfangin. Mynd- in verður frumsýnd hér á landi í júní og þykir afar líkleg til vinsælda. 14 Myndir mánaðarins Árleg verðlaunahátíð bandarískra krakka, eða The Kid’s Choice Rewards, fór fram 23. mars en þar eru valdir verðlaunahafar slímaðir um leið og þeim eru afhent verðlaunin. Chris Pratt var á meðal þeirra heppnu í þetta sinn en hann var kosinn uppáhalds naglinn (Favorite Butt-Kicker) fyrir frammistöðuna sem Owen Grady í Jurassic World: Fallen Kingdom. Tvíburarnir Hugo og Lucas Lavoie mættu spenntir á South by Southwest-hátíðina enda skipta þeir með sér hlutverki í mynd- inni Pet Sematary sem var sýnd á hátíð- inni. Þeir fengu samt ekki að sjá hana. Þau Cole Sprouse og Haley Lu Richardson sem leika aðalhlutverkin í myndinni Five Feet Apart eru nú á fullu að kynna myndina og virðast skemmta sér vel í leiðinni. Hér bregða þau á leik fyrir ljósmyndara.