Myndir mánaðarins Maí 2018 tbl. 292 DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 8

Gullkorn Ég á mér enga uppáhaldsleikstjóra frekar en uppáhaldsliti eða uppá- haldsmat eða uppáhalds-eitthvað annað. Hins vegar eru til leikstjór- ar sem mér hefur ekki líkað við að vinna með ... en sennilega er það vegna þess að ég hef unnið með þeim bestu í bransanum og það hefur spillt mér. - Meryl Streep. Ég er algjörlega opinn fyrir því. Ef einhver sendir mér handrit og býður mér hlutverk sem ég hef áhuga á þá skiptir það mig engu máli hvaða flokki myndin tilheyrir. Ég vel ekki hlutverk eftir því. - Leonardo DiCaprio, spurður hvort það sé ekki kominn tími fyrir hann að leika í rómantískri kómedíu. Mín átrúnaðargoð eru Tom Hanks, Leonardo DiCaprio og Matt Dam- on. Ég er ekkert að líkja mér við þá en mig dreymir samt um að feta sömu brautir og þeir hafa gert. - Dylan O’Brien. Ef valið væri mitt þá tæki ég kvik- myndir fram yfir sjónvarp og leik- hús fram yfir kvikmyndir. - Sam Rockwell. 8 Myndir mánaðarins Í fyrsta lagi þá tími ég ekki tím- anum sem fer í þetta og í öðru lagi þá sé ég engan tilgang í því að láta alla vita stöðugt hvað ég sé að gera, hvert ég sé að fara og hvað ég er að hugsa. - Rebecca Ferguson, sem er hvergi sýnileg á samfélagsmiðlum. Ég verð að taka mér frí á milli verkefna. Ég hef aldrei getað hoppað úr einu verkefni í annað án smátíma fyrir sjálfa mig og fjölskylduna inn á milli. - Frances McDormand. Hlutverk sem eru algjör andstæða við það sem ég er. Ef einhver byði mér hlutverk t.d. dýfingakonu myndi ég ekki hugsa mig tvisvar um því ég er bæði lofthrædd og svo til ósynd. - Jessica Chastain, um draumahlut- verkin. Ég minnist satt að segja engra hlutverka sem ég harma eða finnst leitt að hafa ekki fengið. Hins vegar á ég minningar um hlutverk sem ég fékk ekki og varð síðan feginn að hafa sloppið við. - Gary Oldman. Ég er stolt af mörgu á mínum ferli. Einna stoltust er ég af myndinni An Unforgettable Summer sem enginn sem þetta les hefur séð. - Kristin Scott Thomas. Ég veit þetta hljómar yfirborðs- kennt og sjálfselskt en ein versta reynsla sem ég hef orðið fyrir var að týna gallajakkanum sem mamma gaf mér. Ég verð miður mín út af því það sem eftir er. - Lily James. Nafnið er franskt og rétt fram borið er það „Timo-tei“. En mér er alveg sama þótt fólk beri það fram „Timo-þí“. Fólk má líka kalla mig Tim eða Timmy og sumir kalla mig Tímó. Ég samþykki þetta allt. - Timothée Chalamet. Uppáhaldstími minn eru sunnu- dagsmorgnar þegar við í fjölskyld- unni bökum pönnukökur og spjöllum um lífið og tilveruna. Þannig hefur það alltaf verið hjá okkur og ég vona sannarlega að við getum haldið áfram í þessa hefð lengi enn. - Hugh Jackman. Ég hóf atvinnumannsferilinn sem leikari fimmtán ára gamall árið 1989 og þekki ekki neitt annað en að hafa þurft að berjast fyrir hverju einasta verkefni sem ég hef fengið. Þú mátt kalla mig sérfræðing í ströggli því ég er það. - Walter Goggins. Ég hef alltaf elskað að vera í vatni allt frá því ég var barn. Mig dreymdi meira að segja um að geta andað eðlilega í vatni. Þannig að þetta var sannkallað draumahlutverk. - Sally Hawkins, um hlutverk sitt í The Shape of Water. Ég var alltaf harðákveðinn í að verða leikari. Ég vildi t.d. alls ekki fá spangir en þegar mamma sagði mér að ég gæti ekki orðið leikari nema ef ég fengi mér spangir þá fékk ég mér spangir. - James Franco. Þetta er ekki mynd um pólitík. Þetta er mynd um grasrótina, fólkið sem axlaði byrðarnar fyrst. - Ruth Negga, um myndina Loving.