Myndir mánaðarins Maí 2018 tbl. 292 DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 10
Three Billboards Outside Ebbing, Missouri
Sorg, morð og þrjú skilti
Sjö mánuðum eftir að dóttir Mildred Hayes var myrt þrýtur
hana þolinmæðina og grípur til sinna ráða til að fá lögreglu-
stjórann Bill Willoughby og menn hans í smábænum Ebbing í
Missouri til að rannsaka málið og finna morðingjann. Tekst
það eða býr eitthvað meira að baki afskiptaleysi Willoughbys?
Three Billboards Outside Ebbing, Missouri er eftir írska leikstjórann
Martin McDonagh sem á að baki tvær aðrar frábærar bíómyndir, In
Bruges sem hann sendi frá sér árið 2008 og Seven Psychopaths sem
var frumsýnd 2012. Three Billboards Outside Ebbing, Missouri er að
grunni til morðgáta og glæpasaga en um leið kolsvört kómedía rétt
eins og fyrri myndir Martins, en hann skrifar einnig handritið. Þess
utan þykir myndin afar vel leikin, ekki síst af Frances McDormand
sem hér túlkar af sínu alkunna öryggi eina af eftirminnilegustu
bíómyndapersónum ársins 2017. Mynd sem enginn ætti að missa af.
Three Billboards
Frances McDormand leikur aðalpersónuna Mildred sem grípur til
óvenjulegra ráða þegar sjö mánuðir eru liðnir frá því að dóttir hennar
var myrt og lögreglunni hefur lítið sem ekkert miðað í rannsókninni.
Outside Ebbing, Missouri
Svört kómedía / Glæpasaga
DVD
115
mín
Aðalhlutverk: Frances McDormand, Woody Harrelson, Sam Rockwell,
Abbie Cornish, John Hawkes, Peter Dinklage og Lucas Hedges
Leikstjórn: Martin McDonagh Útgefandi: Sena
3. maí
Punktar ....................................................
HHHHH - Empire HHHHH - Total Film HHHHH - ReelViews
HHHHH - Chicago Sun-Times HHHHH - RogerEbert.com
HHHHH - R. Stone HHHHH - Telegraph HHHHH - Guardian
HHHH 1/2 - Hollywood Reporter HHHH 1/2 - New York Post
HHHH - Variety HHHH - CineVue HHHH - Time Out
Fyrir utan að hljóta frábæra dóma gagnrýnenda hefur Three Bill-
boards ... hlotið óteljandi verðlaun og viðurkenningar, þar á meðal
BAFTA- og Golden Globe-verðlaunin sem besta mynd ársins og Ósk-
arsverðlaunin fyrir leik Frances McDormand og Sams Rockwell.
l
Bærinn þar sem sagan í myndinni gerist og er kallaður Ebbing er í
raun smábærinn Sylva í Norður-Karólínuríki. Margir af bakgrunns-
leikurunum sem bregður fyrir í myndinni eru í raun íbúar Sylva.
l
Lögreglustjóranum í Ebbing (Woody Harrelson) er ekki skemmt yfir
athyglinni sem Mildred vekur með aðgerðum sínum til að þrýsta á
hann og menn hans. Eða býr kannski eitthvað annað að baki?
Veistu svarið?
Eins og kemur fram hér til hægri hlaut Frances
McDormand Óskarsverðlaunin í ár fyrir hlutverk
sitt í myndinni og var það hennar fimmta tilnefning
til þessara eftirsóttu verðlauna. En fyrir leik í hvaða
mynd hlaut hún einnig Óskarinn árið 1997?
Þau Sam Rockwell og Frances McDormand hlutu öll þrenn stóru verð-
launin fyrir leik sinn, þ.e. BAFTA-, Golden Globe- og Óskarsverðlaunin.
Fargo.
10
Myndir mánaðarins