Myndir mánaðarins Maí 2018 tbl. 292 Bíóhluti | Page 4
Myndir mánaðarins
Gleðilegt sumar
Já, sumarið er gengið í garð samkvæmt tímatalinu og þótt það
hafi ekki byrjað beint sumarlega alls staðar á landinu að þessu
sinni skulum við vona að maí verði mildur og góður fyrir alla.
En hvernig sem veðrið verður úti má alltaf bóka að í bíóhúsunum
verður logn og blíða alla daga, allan mánuðinn og fullt af góðum
myndum til að sjá. Að vísu verða óvenjufáar myndir frumsýndar að
þessu sinni, eða níu, en á móti kemur að þetta eru allt afar áhuga-
verðar myndir af ýmsum toga og að úrvalið í bíóhúsunum nú
þegar er mjög gott fyrir. Annars lítur dagskráin svona út:
Bíódagskráin í maí:
4. maí Vargur
4. maí Overboard
9. maí Bókmennta- og kartöfluböku-
félagið
11. maí I Feel Pretty
16. maí Deadpool 2
18. maí Krummi klóki
23. maí Solo: A Star Wars Story
23. maí Draumur
23. maí Kona fer í stríð
Bls. 16
Bls. 18
Bls. 19
Bls. 20
Bls. 22
Bls. 24
Bls. 26
Bls. 28
Bls. 29
LILY JAMES
MICHIEL HUISMAN
Og eins og venjulega hvetjum við lesendur til að kíkja einnig á
DVD- og VOD-útgáfu mánaðarins sem kynnt er hinum megin í
blaðinu auk tveggja nýrra tölvuleikja sem koma út 25. maí.
Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í
eitthvert kvikmyndahúsanna?
Finndu þá stjörnuna og taktu þátt í leiknum!
Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna pínulitla
stjörnu sem skín inni á einni síðunni hér bíómegin í
blaðinu og lítur út eins og þessi:
Ef þú finnur stjörnuna og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á
facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með
skilaboðum, þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem stjarnan er. Ekki
gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu.
Frestur til þátttöku er til og með 21. maí. Valið verður af handahófi
úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn vinningshafa
síðan birt á Facebook-síðunni okkar og í næsta tölublaði sem kemur
út í lok maí.
Vinningshafar í síðasta leik, finndu páskaungann:
Eldey Alexandra, Nesvegi 1, Hauganesi, 621 Dalvíkurbyggð
Stefán Jóhannesson, Háulind 17, 201 Kópavogi
Tinna Magnúsdóttir, Frostafold 23, 112 Reykjavík
Ásdís Kristjánsdóttir, Furugrund 71, 200 Kópavogi
Tinna Ósk Hauksdóttir, Hrísrima 3, 112 Reykjavík
Takk fyrir þátttökuna!
MYNDIR MÁNAÐARINS
292. tbl. maí 2018
Útgefandi: Myndir mán. ehf., Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 534-0417
Heimasíða: www.myndirmanadarins.is
Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / [email protected]
Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson
Próförk: Veturliði Óskarsson
Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja
Upplag: 20.000 eintök
4
Myndir mánaðarins
FRUMSÝND 9. MAÍ