Myndir mánaðarins Maí 2017 tbl. 280 DVD-VOD-hluti | Page 6

Stjörnuspá mánaðarins

Vatnsberinn 20 . jan . - 18 . feb .
Tvíburarnir 21 . maí - 21 . júní
Vogin 23 . sept . - 23 . okt .
Þér hættir til að gleyma þér í dagdraumum
Nú þegar Merkúr fer inn í dverg-
Hættu nú að fresta hlutunum og
sem væri í sjálfu sér ekkþyrpinguna
ættu tvíburar að nota
brettu upp ermarnar á einhverjum
ert mál ef draumarnir væru ekki
tækifærið og fá sér vindsköfur . Þér
sem getur klárað dæmið fyrir þig .
alltaf bara einhver þvæla . Þú finnur
líður eins og þú sért að fá magaverk
Passaðu þig á að þvælast ekki fyrir
nokkrar gamlar glasamottur .
en hann hverfur í næsta prumpi .
næst þegar vélskóflan verður færð
.
Fiskarnir 19 . feb . - 20 . mars Þú uppgötvar að það er ekki allt sem sýnist sem bendir til að þú þurfir að fá þér nýjar linsur . Vertu með allt á hreinu og kauptu þér traust flökunarborð fyrir sumarið .
Krabbinn 22 . júní - 22 . júlí Þú ert hikandi gagnvart risastórri ákvörðun sem þú þarft að taka á næstu dögum . Kýldu bara á það en vertu tilbúin ( n ) að hlaupa upp á Herðubreið ef allt fer til Skotlands .
Sporðdrekinn 24 . okt . - 21 . nóv . Áttaðu þig á mikilvægi þess að muna að neðansjávarhveri er oftast að finna við hryggi í sjávarbotninum þar sem tveir jarðskorpuflekar skiljast og ný jarðskorpa myndast .
Hrúturinn 21 . mars - 19 . apríl
Gæfan mun loksins brosa við þér í maí þegar einhver gefur þér tvo stóra poka af tíuþúsundköllum , hárgreiðslusett , buffhamar , eggjaþeytara og eitthvað eitt í viðbót .
Nautið 20 . apríl - 20 . maí
Af ótrúlegu sjálfsöryggi og óbugandi trú á eigin getu ræðst þú á garðinn þar sem hann er lægstur í maí en uppgötvar of seint að þú borðaðir of mikið af rúgbrauði .
Ljónið 23 . júlí - 22 . ágúst
Það þýðir ekkert fyrir þig að flýja raunveruleikann eins og þú hefur gert heldur þarftu að horfast í augu við staðreyndir og hætta að vera svona svakalegur eymingi .
Meyjan 23 . ágúst - 22 . sept .
Þú ert á báðum áttum varðandi mál sem snertir ættingja þinn í móðurætt sem heitir annað hvort Sigurður , Hafþór , Ingi , Guðrún , Ingibjörg eða eitthvað sem rímar við sósuskál .
Bogmaðurinn 22 . nóv . - 21 . des .
Þú ert að velta því fyrir þér að fá þér skjaldbökur en við mælum hiklaust með að þú fáir þér frekar tvíbökur , enda gera þær svipað gagn og eru mun betri með brauðsúpu .
Steingeitin 22 . des . - 19 . jan .
Taktu öllu sem gerist af æðruleysi nema ef einhver sparkar í sköflunginn á þér og hrindir þér í poll í sparifötunum . Bíttu laust í öll epli á næstunni því sum þeirra eru súr .

Stórmerkilegar staðreyndir , eða þannig ...

Chris Pratt er af Norðmönnum kominn í móðurættina , en norskt ættarnafn móður hans er Indahl . Hann talaði fyrir Emmett í ensku útgáfunni af The Lego Movie .
Danska leikkonan Sidse Babett Knudsen er ein af fimm leikkonum sem eru ekki franskar en hafa hlotið César-verðlaunin fyrir leik . Hinar fjórar eru Virna Lisi frá Ítalíu , hin belgíska Cécile De France , hin spænska Carmen Maura og Kristen Stewart sem er bandarísk .
Tim Roth er einn þeirra leikara sem fóru aldrei í leiklistarnám – og fer varla úr þessu .
Eftir að hafa útskrifast úr menntaskóla fór Aaron Eckhart til Sviss og Frakklands þar sem hann stundaði trúboð fyrir Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu í tvö ár . Á seinni árum hefur hann þó lítið stundað trúna og ekki verið virkur innan kirkjunnar .
Millinafn Jennifer Lawrence er Shrader . Hún er ágætur gítarleikari og alveg ótrúlega lík egypsku leikkonunni Zubaida Tharwat sem sést á myndunum hér fyrir neðan .
Willem Dafoe var rekinn úr fyrsta kvikmyndahlutverkinu sem hann fékk . Við vitum ekki fyrir hvað en myndin var Heaven ' s Gate eftir Michael Cimino og árið var 1980 .
Skírnarnafn Millu Jovovich er í raun Militza , en hún stytti það í Millu þegar hún flutti til Bandaríkjanna frá Úkraínu . Milla er þó borið fram eins og Mía er skrifað .
Bryce Dallas Howard hefur verið grænmetisæta síðan Joaquin Phoenix lét hana horfa á heimildarmyndina Earthlings árið 2005 , en hún fjallar um dýraníð .
6 Myndir mánaðarins
Gemma Arterton lýsti því yfir í viðtali að hún myndi ekki eignast barn fyrr en hún hefði eignast Óskar .
Leikarinn Edgar Ramirez , sem er frá Venesúela , talar fimm tungumál , spænsku , sem er móðurmálið , ensku , þýsku , frönsku og Ítölsku . Hann lærði fjölmiðlafræði áður en hann sneri sér að leiklistinni .
Matthew McConaughey er þekktur fyrir að þola ekki rakspíra og svitalyktareyði og vill helst ekki vera innan um fólk sem ilmar .