Myndir mánaðarins Maí 2017 tbl. 280 bíóhluti | Page 4
Myndir mánaðarins
Gleðilegt sumar
Já, sumarið er gengið í garð samkvæmt tímatalinu og þótt það
hafi ekki byrjað beint sumarlega alls staðar á landinu að þessu
sinni skulum við vona að maí verði mildur og góður fyrir alla.
En hvernig sem veðrið verður úti má alltaf bóka að í bíóhúsunum
verður logn og blíða alla daga, allan mánuðinn og fullt af góðum
myndum til að sjá. Að vísu verða óvenjufáar myndir frumsýndar að
þessu sinni, eða sjö, en á móti kemur að þetta eru allt afar áhuga-
verðar myndir af ýmsum toga og að úrvalið í bíóhúsunum er mjög
gott fyrir. Annars lítur dagskráin svona út:
Bíódagskráin í maí:
5. maí
10. maí
12. maí
17. maí
19. maí
25. maí
Ég man þig
King Arthur: Legend of the Sword
Snatched
A Few Less Men
Alien: Covenant
Pirates of the Caribbean:
Salazar’s Revenge
26. maí Unlocked
Bls. 20
Bls. 22
Bls. 24
Bls. 26
Bls. 27
Bls. 28
Bls. 30
Og eins og venjulega hvetjum við lesendur til að kíkja einnig á
DVD- og VOD-útgáfu mánaðarins sem kynnt er hinum megin í
blaðinu ásamt tölvuleiknum Farpoint, en hann er sérstaklega
gerður fyrir nýju VR-sýndarveruleikatæknina í PlayStation.
- Ritstjóri.
Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í
eitthvert kvikmyndahúsanna?
Finndu þá stjörnuna og taktu þátt í leiknum!
Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna pínulitla
stjörnu sem skín inni á einni síðunni hér bíómegin í
blaðinu og lítur út eins og þessi:
Ef þú finnur stjörnuna og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á
facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með
skilaboðum, þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem stjarnan er. Ekki
gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu.
Frestur til þátttöku er til og með 21. maí. Valið verður af handahófi
úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn vinningshafa
síðan birt á Facebook-síðunni okkar og í næsta tölublaði sem kemur
út í lok maí.
Vinningshafar í síðasta leik, finndu páskaungann:
Stefán Bjargmundsson, Ljósárbrekku 1, 735 Eskifirði
Hrefna Sif Svavarsdóttir, Heiðarbakka 1, 230 Keflavík
Steinunn Leifsdóttir, Hálsaseli 5, 109 Reykjavík
Anton Örn, Laugateigi 16, 105 Reykjavík
Sólrún Haraldsdóttir, Dalsási 8, 221 Hafnarfirði
Takk fyrir þátttökuna!
MYNDIR MÁNAÐARINS
280. tbl. maí 2017
Útgefandi: Myndmark, Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 581-1433
Heimasíða: www.myndirmanadarins.is
Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / [email protected]
Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson / [email protected]
Próförk: Veturliði Óskarsson Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja
Upplag: 23.000 eintök
4
Myndir mánaðarins