Myndir mánaðarins Mars 2017 tbl. 278 Bíóhluti | Page 4

Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í eitthvert kvikmyndahúsanna ? Finndu þá sólina og taktu þátt í leiknum !
Myndir mánaðarins
Magnaður mars
Jæja , Óskarinn er að baki og þar með má segja að kvikmyndaárið 2016 hafi verið kvatt endanlega en það skilaði sannarlega mörgum góðum myndum . Nú er það árið 2017 sem fær óskipta athygli og það er alveg óhætt að vera bjartsýnn því framundan eru margar myndir sem lofa góðu . Hluti þeirra kemur í bíó í mars og hver veit nema einhver þeirra eigi eftir að hreppa Óskar að ári .
Annars lítur dagskráin í mars svona út í heild :
3 . mars Logan
Bls . 18
3 . mars A Dog ’ s Purpose
Bls . 20
3 . mars Rokkhundur
Bls . 22
3 . mars Stóra stökkið
Bls . 23
10 . mars Hidden Figures
Bls . 24
10 . mars Kong : Skull Island
Bls . 26
17 . mars Fríða og dýrið
Bls . 28
17 . mars Get Out
Bls . 30
24 . mars Power Rangers
Bls . 32
24 . mars Chips
Bls . 33
24 . mars Life
Bls . 34
31 . mars Strumparnir : Gleymda þorpið
Bls . 35
31 . mars Ghost in the Shell
Bls . 38
Við viljum svo eins og venjulega einnig vekja athygli kvikmyndaunnenda á DVD- og VOD-útgáfunni sem kynnt er hinum megin í blaðinu , auk fimm nýrra tölvuleikja . Góða skemmtun !
- Ritstjóri .

Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í eitthvert kvikmyndahúsanna ? Finndu þá sólina og taktu þátt í leiknum !

Leikurinn er ekki flókinn . Þú þarft að finna litla sól sem reynir að skína skært á einni síðunni bíómegin í blaðinu og lítur út eins og þessi :
Ef þú finnur sólina og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á facebook . com / myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með skilaboðum , þ . e . númerið á blaðsíðunni þar sem sólin er . Ekki gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu .
Frestur til þátttöku er til og með 21 . mars . Valið verður af handahófi úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn vinningshafa síðan birt á Facebook-síðunni okkar og í næsta tölublaði sem kemur út í lok mars .

FRUMSÝND 10 . MARS

Vinningshafar í síðasta leik , finndu snjókornið :
Bryndís Kristína Björnsdóttir , Hjallabrekku 9 , 200 Kópavogi Þórarinn Emil Magnússon , Þrastahrauni 6 , 220 Hafnarfirði Guðni Sigurðsson , Sóleyjagötu 12 , 300 Akranesi Daniel Kári Andrason , Baugakór 28 , 203 Kópavogi Elsa Rós Bjarkadóttir , Heiðarhrauni 31b , 240 Grindavík
Takk fyrir þátttökuna !
4 Myndir mánaðarins
MYNDIR MÁNAÐARINS
278 . tbl . mars 2017 Útgefandi : Myndmark , Trönuhrauni 1 , 220 Hafnarfirði , sími 581-1433 Heimasíða : www . myndirmanadarins . is Ábyrgðarmaður : Stefán Unnarsson / myndmark @ islandia . is Ritstjórn / Texti / Umbrot : Bergur Ísleifsson / gbergur @ gmail . com Próförk : Veturliði Óskarsson Prentun / Bókband : Ísafoldarprentsmiðja Upplag : 23.000 eintök