Get Out Tryllir / Ráðgáta
Get Out
Ekki láta blekkjast
Parið Chris og Allison eru ákaflega ástfangin hvort af öðru , en þau eru hvort af sínum kynþættinum , hann svartur en hún hvít . Að því kemur að Allison vill kynna Chris fyrir foreldrum sínum , en af því hefur Chris nokkrar áhyggjur því hann er hræddur um að foreldrar hennar taki sér ekki vel . Hann verður samt að láta á það reyna en á heldur betur eftir að sjá eftir því !
Sagan í Get Out er af þeirri gerð sem ekki má segja of mikið frá til að skemma ekki óvænta fléttuna fyrir áhorfendum . Þetta er fyrsta mynd grínistans Jordans Peele sem leikstjóra og það er ljóst að hann á framtíðina fyrir sér í því hlutverki . Myndin byrjar á léttum og fyndnum nótum en þróast síðan út í dularfulla og æsispennandi atburðarás sem kemur áhorfendum gersamlega í opna skjöldu ...
Get Out Tryllir / Ráðgáta
Aðalhlutverk : Daniel Kaluuya , Allison Williams , Bradley Whitford , Catherine Keener og Caleb Landry Jones Leikstjórn : Jordan Peele Bíó : Laugarásbíó , Smárabíó og Borgarbíó Akureyri
103 mín
Frumsýnd 17 . mars
Chris hefur áhyggjur af því að foreldrar Allison munu ekki taka því vel að hann sé svartur og reynist hafa rétt fyrir sér – og rúmlega það .
Punktar ....................................................
HHHH1 / 2 - The Hollywood Reporter HHHH1 / 2 - Variety HHHH - Film Stage HHHH - Screen HHH1 / 2 - R . Ebert . com l Get Out var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Sundance 27 . janúar og fékk frábærar viðtökur . Þegar þetta er skrifað hafa samt aðeins átta gagnrýnendur á Metacritic skrifað um hana ( sjá stjörnugjöf fimm þeirra hér fyrir ofan ) en á Rotten Tomatoes var hún komin með 100 í einkunn frá 23 gagnrýnendum 24 . febrúar . Betra gerist það ekki .
l Jordan Peele segist hafa fengið hugmyndina að sögunni þegar hann hlustaði á umræður fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 2008 um hvort væri betra að fá konu sem forseta eða svartan karl . Þess má geta að móðir Jordans var svört en faðirinn hvítur og sjálfur er Jordan í sambúð með hvítri konu , grínleikkonunni Chelsea Peretti .
Foreldrar Allison eru leiknir af Bradley Whitford og Catherine Keener .
Veistu svarið ? Leikstjóri Get Out og handritshöfundur , Jordan Peele , hefur hingað til verið þekktastur sem gamanleikari , fyrst í MADtv-þáttunum , síðan í grínþáttunum Key and Peele og nú síðast í bíómynd sem gerði það gott í bíó í fyrra . Hvað hét hún ?
Til að byrja með virðist allt vera með felldu á heimili foreldra Allison en annað á eftir að koma á daginn .
30 Myndir mánaðarins
Keanu .