Myndir mánaðarins Júní 2018 tbl. 293 Bíóhluti | Page 30
Sicario: Day of the Soldado
Gleymdu öllum reglum
Bíómyndin Sicario sem Denis Villeneuve sendi frá sér í október
2015 er á topplista margra sem ein besta mynd þess árs og jafn-
framt einhver mest spennandi mynd síðari ára. Handritið og
sagan var eftir Taylor Sheridan sem þó var hvergi nærri búinn
með hana og þann 27. júní fáum við að sjá kafla númer tvö.
Það þarf vonandi ekki að hvetja neinn sem sá fyrri myndina að sjá
þessa líka enda bendir allt til að hún sé í engu síðri, jafnvel betri.
Tvær algjörlega frábærar stiklur úr henni hafa verið gefnar út, önnur
löng, hin stutt, og þar sést vel að átökin og spennan sem einkenndi
fyrri myndina magnast nú enn frekar þegar þeir Matt Graver og
Alejandro Gillick taka að sér nýtt og enn erfiðara verkefni en áður ...
Félagarnir Matt Graver og Alejandro Gillick þurfa að stöðva stór-
hættulegt smygl á hryðjuverkamönnum til Bandaríkjanna, en
það getur að sjálfsögðu ekki gengið enda væri þá voðinn vís.
Sicario: Day of the Soldado
Punktar ....................................................
Spenna / Hasar
Eins og flestir vita þá samdi Jóhann Jóhannsson tónlistina í fyrri
myndinni og hlaut fyrir hana fjölmörg verðlaun og viðurkenningar,
þ. á m. tilnefningar til BAFTA- og Óskarsverðlauna. Í þetta sinn er
tónlistin samin af Hildi Guðnadóttur en hún var náin samstarfskona
Jóhanns, spilaði á selló í mörgum verka hans og á sjálf að baki tón-
list í myndum eins og Eiðnum, Tom of Finland og Mary Magdalene
sem Jóhann var einmitt að vinna að þegar hann féll frá.
l
122
mín
Aðalhlutverk: Josh Brolin, Benicio Del Toro, Isabela Moner, Catherine
Keener, Matthew Modine, Manuel Garcia-Rulfo og Jeffrey Donovan
Leikstjórn: Stefano Sollima Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó,
Sambíóið Keflavík og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 27. júní
Upphaflega stóð til að Denis Villenevue sem leikstýrði fyrri mynd-
inni myndi einnig leikstýra þessari en þegar til tók gat hann það
ekki vegna annarra skuldbindinga. Við taumunum tók ítalski leik-
stjórinn Stefano Sollima sem m.a. gerði hina fantagóðu mynd
Suburra árið 2014 og er aðalhöfundur mafíuþáttanna Gomorrah.
l
Líklegt er að þriðja Sicario-myndin verði gerð en það hefur ekki
verið staðfest og veltur mjög líklega á gengi þessarar.
l
Josh Brolin hefur verið áberandi í tveimur af stórsmellum síðustu
mánaða, þ.e. Infinity War og Deadpool 2, og leikur hér Matt Graver.
Veistu svarið?
Taylor Sheridan var best þekktur sem leikari allt þar
til hann sendi frá sér handritið að Sicario. Fyrir utan
þessa nýju Sicario-mynd hafa tvö önnur handrit
hans nú verið kvikmynduð, annars vegar Wind River,
sem hann leikstýrði sjálfur, og hins vegar ...?
Inn í málin blandast Isabela Reyes (Isabela Moner) en hún er dóttir
eiturlyfjakóngs og lendir því á milli steins og sleggju í átökunum.
Hell or High Water.
30
Myndir mánaðarins