Myndir mánaðarins Júní 2018 tbl. 293 Bíóhluti | Page 14

Midnight Sun Ástarsaga
Midnight Sun
Ástin getur ekki yfirstigið allt
Katie Price er sautján ára gömul stúlka sem haldin er sjúkdómi , eða svokölluðum xp-genagalla , en hann veldur því að útfjólubláu geislar sólarinnar eru henni banvænir . Af þessum sökum hefur hún þurft að halda sig innan dyra á bak við sérsmíðaða einangrun á daginn síðan hún var ung . En á kvöldin fer hún út .
Í Midnight Sun leiða saman hesta sína tvær af upprennandi stjörnum Bandaríkjanna , þau Bella Thorne og Patrick Schwarzenegger . Bæði hafa þau getið sér gott orð á undanförnum árum fyrir leiklist en einnig á öðrum sviðum . Patrick er t . d . einn af stofnendum Project360-netverslunarinnar sem nýtur gríðarlegra vinsælda og gefur stóran hluta ágóða síns til alls kyns góðgerðarmála og Bella er m . a . þekkt fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum og gegn einelti . Bæði njóta þau síðan mikillar hylli á samfélagsmiðlum þar sem milljónir manna fylgja þeim . Það verður gaman að sjá þau saman í þessari ljúfu , rómantísku sögu sem heillað hefur alla sem hana hafa heyrt ...

Midnight Sun Ástarsaga

Aðalhlutverk : Bella Thorne , Patrick Schwarzenegger , Rob Riggle , Quinn Shephard , Ken Tremblett , Jenn Griffin , Nicholas Coombe og Tiera Skovbye Leikstjórn : Scott Speer Bíó : Sambíóin Álfabakka , Kringlunni , Akureyri og Keflavík
91 mín
Frumsýnd 1 . júní
Þegar Katie fer út á kvöldin tekur hún gjarnan gítarinn með og æfir sig á brautarpalli nærri heimili sínu . Það er þar sem hún hittir Charlie í fyrsta sinn augliti til auglitis þegar hann á leið fram hjá eitt kvöldið .
Punktar .................................................... l Þótt Patrick Schwarzenegger , sem er fæddur 1993 og er eldri sonur Arnolds Schwarzenegger og Mariu Shriver , hafi verið viðloðandi leiklist frá unga aldri er þetta í fyrsta sinn sem hann leikur aðalhlutverk í bíómynd . Patrick er eins og margir vita dóttursonur Eunice Kennedy Shriver sem stofnaði Ólympíuleika þroskahamlaðra ( Special Olympics ) árið 1968 en á meðal sex systkina hennar voru John F . Kennedy forseti Bandaríkjanna og Robert F . Kennedy .
l Handritið að Midnight Sun er skrifað af Eric Kirsten og er byggt á handriti japönsku myndarinnar Taiyō no Uta eftir Norihiro Koizumi sem var gerð árið 2006 og naut mikilla vinsælda í heimalandinu enda einstaklega góð og áhrifarík ástarsaga sem gleymist seint .
Charlie er leikinn af Patrick Schwarzenegger sem óhætt er að segja að beri sterkan svip frá bæði föður- og móðurættinni .
Veistu svarið ? Sú sem leikur Katie Price , Bella Thorne , hóf leiklistarferilinn árið 2003 , aðeins sex ára að aldri , og hefur með leik sínum , söng og mannréttindabaráttu skapað sér miklar vinsældir í Bandaríkjunum . í hvaða þekktu sjónvarpsþáttum leikur hún Paige Townsen ?
Þau Charlie og Katie ná afar vel saman en yfir sambandi þeirra hvílir skuggi sjúkdóms Katie sem meinar henni að vera úti þegar sólin skín .
14 Myndir mánaðarins
Famous in Love .