Myndir mánaðarins Júní 2017 tbl. 281 bíóhluti | Page 8
Væntanleg í júlí – Dunkirk
Kraftaverkið í Dunkirk
Þann 19. júlí verður hin umtalaða mynd leikstjórans Christophers
Nolan, Dunkirk, frumsýnd, en þeir eru margir sem bíða hennar
með óþreyju, ekki bara kvikmyndaáhugafólk heldur líka áhuga-
fólk um sögu, ekki síst þeir sem áhuga hafa á atburðarás síðari
heimsstyrjaldarinnar. Christopher skrifaði handritið sjálfur og
hefur vafalaust lagt sig fram um að lýsa atburðarásinni á sem
sannferðugastan hátt en þó er einhvern veginn erfitt að ímynda
sér að allt það sem gerðist á norðvesturströnd Frakklands í lok
maí 1940 rúmist í einni mynd. En Nolan er auðvitað snillingur.
Í stuttu máli má segja að Dunkirk fjalli um það þegar 400 þúsund
hermenn Bandamanna (Frakkar, Bretar og Kanadamenn) króuð-
ust inni við ströndina í Dunkirk, svo til allslausir, þ.m.t. skotfæra-
lausir. Þýski herinn nálgaðist óðfluga og það var ljóst að ef
mönnunum yrði ekki bjargað í tíma myndu Þjóðverjar stráfella
þá alla með tölu innan örfárra daga. Til að gera stöðuna enn
verri og vonlausari fyrir hermennina sem biðu björgunarinnar
sveimuðu orrustuvélar Þjóðverja yfir ströndinni og pössuðu að
enginn kæmist undan sjóleiðina með því að sökkva öllum
skipum og bátum sem þar voru eða nálguðust hana. Staðan var
því eins slæm og hún gat orðið. Vegna þess er í raun alveg
ótrúlegt að Bretum skyldi samt sem áður takast að flytja rúmlega
338 þúsund hermenn yfir Ermarsundið áður en yfir lauk og það
er ekki að undra að sú magnaða björgun hafi allar götur síðan
verið kölluð „Kraftaverkið í Dunkirk“.
En sagan er auðvitað mun viðameiri en þetta. Það er til dæmis
alveg ljóst að „kraftaverkið“ hefði aldrei getað orðið að veruleika
nema vegna hetjudáða þeirra sveita Bandamanna og Belga sem
tókst, þrátt fyrir að eiga við ofurefli að etja, að tefja för stórskota-
liðs Þjóðverja til strandarinnar. Á meðan á undanhaldi bresku,
frönsku og kanadísku hermannanna stóð urðu nokkrar sveitir
þeirra eftir við víglínuna og börðust þrátt fyrir að hermönnum
þessara sveita væri alveg ljóst að þeir myndu deyja. En tíminn
sem þeim tókst að vinna með hetjulegri mótstöðunni varð til
þess að mun fleiri félagar þeirra náðu til strandarinnar en útlit
var fyrir auk þess að lengja í því að Þjóðverjar næðu þangað.
Á meðan vörðust Belgar einnig við sín landamæri þrátt fyrir
vonlausa stöðu. Þeim eins og öðrum var alveg ljóst að uppgjöf
var eina vitið ef þeir vildu ekki verða stráfelldir en ákváðu samt
að berjast í 24 klukkustundir í viðbót. Þessi sólarhringur skipti
sköpum í björgunaraðgerðum Breta og má því segja að her-
menn Belga hafi átt mjög stóran þátt í að skapa „kraftaverkið“.
Þá má einnig segja að það sem gerðist í Bretlandi á meðan á
undanhaldi Bandamanna stóð sé efni í bíómynd eitt og sér.
Yfirmenn breska hersins gerðu sér að sjálfsögðu grein fyrir
ástandinu og hvað væri um það bil að fara að gerast og hermt er
að Churchill hafi sagt við sitt fólk að „stærsti hernaðarlegi ósigur
í margar aldir“ væri framundan. Hann fyrirskipaði að sjálfsögðu
björgunaraðgerðir og orðaði það svo að „the whole root, the
core, and brain of the British Army“ væri um það bil að fara að
deyja á ströndinni í Dunkirk og að gera þyrfti allt til að bjarga
þeim. Við keflinu tók hershöfðinginn Bertram Ramsay sem
ásamt teymi sínu skipulagði í hraði aðgerðir sem m.a. fólust í að
biðja alla Breta sem áttu skip og báta að sigla til Dunkirk strax og
reyna að bjarga eins mörgum og þeir gætu. Við þessari bón
urðu margir sjómenn og frístundasiglingamenn þrátt fyrir að
vita að orrustuflugmenn Þjóðverja myndu gera allt sem þeir
gætu til að sökkva þeim. Þeirra þáttur og þeirra hetjudáð er því
ekki síður mikil og merkileg en annarra sem áttu þátt í að skapa
„kraftaverkið“ í Dunkirk. Og nú er bara að bíða eftir myndinni.
8
Myndir mánaðarins
Hermennirnir sem biðu björgunar á ströndinni í Dunkirk gátu sér
litla sem enga björg veitt þegar orrustuvélar Þjóðverja gerðu á þá
árás enda höfðu rúmlega 60 þúsund þeirra týnt lífi áður en yfir lauk.
Kenneth Branagh leikur einn af yfirmönnum breska hersins sem
ásamt mönnum sínum á ströndinni beið þess sem verða vildi.
Mark Rylance leikur einn þeirra bátaeigenda sem svöruðu neyð-
arkalli yfirvalda og sigldu til Dunkirk til að bjarga mönnum þrátt
fyrir yfirgnæfandi líkur á að þeir myndu ekki lifa það af. Cillian
Murphy leikur orrustuflugmann sem Mark bjargar á leiðinni til
Dunkirk, en annars leika fjölmargir þekktir leikarar í myndinni.