Myndir mánaðarins Júní 2017 tbl. 281 bíóhluti | Page 29
FULLKOMNASTI KVIKMYNDASALUR LANDSINS
JÚNÍ 2017 SMÁRABÍÓ FRUMSÝNIR FULLKOMNUSTU SÝNINGARTÆKNI HEIMS
Fullkomnustu myndgæði heims Fullkomnustu hljómgæði heims Fullkomnari aðstaða
Flagship Laser 4K sýningartæknin
frá Barco er sú besta sem völ er á í
veröldinni. Aðeins 68 kvikmyndahús
í heiminum öllum, þar af 22
kvikmyndahús í Evrópu, geta boðið
gestum sínum upp á slík gæði.
Smárabíó er eitt þeirra. Þú skynjar
hreina byltingu í myndgæðum, skerpu
og litrófi sem á eftir að breyta því
hvernig þú upplifir kvikmyndir í bíó. Dolby Atmos er nýjasta og fullkomnasta
tæknin frá þessum leiðtoga í kvikmynda-
hljóði í heiminum. Með Dolby Atmos er
engu líkara en þú sért inni í atburðarásinni
miðri. Hljóðið flæðir allt í kring um
þig og gefur kvikmyndaupplifuninni
ómótstæðilegan raunveruleikablæ. Dolby
Atmos hefur þannig áhrif að skynfærin
vakna sem aldrei fyrr. Í sal með fullkomnustu sýningartækjum
heims viljum við bjóða frábæra
aðstöðu til að njóta myndarinnar. Við
endurröðuðum sætunum svo þú fáir
meira pláss og getir sem best notið
myndarinnar í góðum félagsskap. Þess
vegna settum við sætin tvö og tvö saman
þannig að þú sért nær þeim sem þú ferð
með í bíó en lengra frá öllum hinum.
Njóttu þess besta með þeim bestu!