Myndir mánaðarins Janúar 2018 tbl. 288 Bíó | Page 36

Maze Runner: The Death Cure Spyrjum að leikslokum Þriðja og síðasta myndin í The Maze Runner-þríleiknum verð- ur frumsýnd 26. janúar en í henni koma öll lokasvör gátunnar fram auk þess sem örlög aðalpersónanna ráðast, en þau eiga örugglega eftir að koma aðdáendum fyrri myndanna á óvart. Myndirnar The Maze Runner (2014) og framhaldið The Scorch Trials (2015) nutu mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum enda þrælgóðar myndir, gerðar eftir samnefndum metsölubókum James Dashner. Það má reikna með að The Death Cure verði jafnvel enn vinsælli en hún er sögð innihalda mesta hasarinn af þeim öllum þar sem nú er komið að því að aðalpersónan Thomas og vinir hans snúi vörn í sókn og freisti þess að frelsa aðra úr ánauðinni sem fyrirtækið WCKD undir stjórn Övu Paige hefur haldið þeim í. En hvað kostar frelsið? Nokkrar af aðalpersónum myndarinnar leggja hér á ráðin en þær eru leiknar af Nathalie Emmanuel, Katherine McNamara, Jacob Lofland, Thomas Brodie-Sangster, Dylan O’Brien, Rosu Salazar og Dexter Darden. Maze Runner: The Death Cure Ævintýri / Vísindahasar Punktar .................................................... Upphaflega stóð til að The Death Cure yrði frumsýnd í febrúar 2017 en það breyttist 18. mars 2016 þegar aðalleikarinn Dylan O’Brien varð fyrir bíl á tökustað og var fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús. Meiðsli hans reyndust sem betur fer ekki lífshættuleg en samt svo mikil að ákveðið var skömmu síðar að fresta tökum á myndinni fram á árið 2017 til að hann fengi nægan tíma til að jafna sig. Þeim var síðan fram haldið í mars sl., heilu ári eftir slysið. l Aðalhlutverk: Dylan O’Brien, Thomas Brodie-Sangster, Rosa Salazar, Kaya Scodelario, Walton Goggins, Patricia Clarkson, Barry Pepper og Aidan Gillen Leikstjórn: Wes Ball Bíó: Smárabíó, Laugarásbíó, Sambíóin Egilshöll og Keflavík, Borgarbíó Akureyri, Selfossbíó, Skjald- borgarbíó, Ísafjarðarbíó, Króksbíó, Bíóhöllin Akranesi og Eyjabíó Frumsýnd 26. janúar Eins og þeir vita sem lesið hafa bækurnar þá skrifaði höfundurinn James Dashner þrjár bækur í viðbót sem tengjast The Maze Runner- þríleiknum, annars vegar bækurnar The Kill Order og The Fever Code sem gerast fyrir atburði fyrstu myndarinnar og hins vegar rafbókina The Maze Runner Files, en hún er ekki eiginleg saga heldur er þar að finna upplýsingar og nánari lýsingar á ýmsum atriðum þríleiksins sem gefa lesendum dýpri og betri skilning á atburðarásinni í heild sinni. Ekkert hefur verið ákveðið varðandi kvikmyndun á forsögunni. l Þeir Thomas og Newt í einu af mörgum hasaratriðum myndarinnar. Veistu svarið? Bandaríski leikarinn Dylan O’Brien, sem er af írskum og enskum ættum, ætlaði sér að verða kvikmynda- tökumaður eins og faðir hans en sneri sér alfarið að leiklist þegar hann var ráðinn í hlutverk Stiles Stilinski í þekktum sjónvarpsþáttum árið 2011. Hvaða þáttum? Leikstjórinn Wes Ball sem leikstýrt hefur öllum þremur Maze Runner- myndunum og Dylan O’Brien sem leikur aðalpersónuna Thomas í þeim ræða hér saman við tökur á einu atriði The Death Cure. Teen Wolf. 36 Myndir mánaðarins