Frá mínum sjónarhóli séð þá er ekkert starf í heiminum jafnmikilvægt og að vera mamma .
- Mark Wahlberg .
|
Ég hef alltaf gert mér grein fyrir takmörkunum mínum sem leikari . Robert De Niro getur leikið allt , ekki ég . Það breytir því þó ekki að ég og Robert elskum báðir að leika . - Christopher Lambert . |
Ég tefli því mér finnst skák skemmtileg . Daginn sem mér hættir að finnast skák vera skemmtileg hætti ég að tefla . - Magnus Carlsen . |
Gerðu bara það sem konan þín segir þér að gera og þá verður allt í lagi með allt annað . - Jason Momoa , um mottóið . |
|||||||||
Ég hef alltaf litið svo á að leikari sem getur ekki unnið fyrir sér sem leikari sé annað hvort ótrúlega heimskur eða yfirnáttúrulega óheppinn . - John Malkovich . |
Það síðasta sem ég fer í bíó að sjá er rómantísk kómedía . - Kate Hudson . |
Ég viðurkenni alveg að mér fannst erfitt að standa í skugga pabba því allt sem ég gerði var borið saman við það sem hann gerði og ég var lengi vel sagður komast áfram á hans nafni en ekki eigin verðleikum . Það fór óskaplega í taugarnar á mér í byrjun og kannski það sé þess vegna sem ég hef alltaf sóst frekar eftir því að leika vonda kallinn . Pabbi lék nefnilega alltaf þann góða . - Vincent Cassel , um föður sinn , stórleikarann Jean-Pierre Cassel . |
Eftir að hafa jafnað mig áttaði ég mig á því að drykkjan væri orðin vandamál . Svo ég hætti . - Morgan Freeman , um það þegar hann vaknaði á ókunnugum stað og vissi ekki hvernig hann hafði komist þangað . |
Æ , ég veit það ekki . Ég er ekki mikið í því að sjá fram í tímann . Ég vona alla vega , ef ég lifi , að ég verði ekki í göngugrind . - Emily Blunt , spurð að því hvernig hún sjái sjálfa sig áttræða . |
Það er sama hvaða persónu ég leik , mér finnst ég alltaf þurfa að verja heiður hennar , að það sé hluti ef leiknum . - Holly Hunter .
Ég fór út í að gera kvikmyndir vegna þess að ég elskaði háværar hasarmyndir . Einn góðan veðurdag geri ég eina . - David Gordon Green .
|
|||||||
Galdurinn við að skrifa gott handrit er sá sami og við að baka góða köku . Maður þarf að nota gott hráefni , kunna að setja það saman á réttan hátt og síðan meðhöndla hana þannig að bragðgæðin sjáist . En það er líka líkt með handriti og köku að ég get ekki bent þér á hvar sykurinn er . - Greta Gerwig .
8 Myndir mánaðarins
|
Ritskoðun á því sem maður segir er leið illa þenkjandi fólks til að hafa af manni frelsið . - Frank Zappa .
Fólk sem semur slæm lög er að mínu áliti mun hættulegra fólk en tónlistarmenn sem semja tónlist um kynlífsreynslu . - Frank Zappa .
|
Ekki borða gula snjóinn . - Frank Zappa . |
Ég er ein af þeim sem hræddust trúða . Á tímabili var ég með trúða á heilanum og gat ekki farið að sofa því ég var svo hrædd um að það væri trúður undir rúminu . Ég hata líka hrollvekjur . Ein þeirra eyðilagði æsku mína . - Haley Bennett . |
Sem leikkona þá var ég nokkuð ánægð með að persónan sem ég lék skyldi vekja viðbrögð en sem manneskju varð mér ekki um sel þegar ég rakst á síðu sem hét „ Ég hata Skylar White “ og sá svo í framhaldinu hvers konar orðræða var í gangi um persónuna á hinum ýmsu spjallþráðum . Mér varð um og ó . - Anna Gunn , um viðbrögðin við persónunni sem hún lék í Breaking Bad-þáttunum . |