Myndir mánaðarins Janúar 2017 tbl. 276 DVD/VOD hluti | Page 6

Stjörnuspá mánaðarins

Vatnsberinn 20 . jan . - 18 . feb .
Tvíburarnir 21 . maí - 21 . júní
Vogin 23 . sept . - 23 . okt .
Það bendir allt til að þú rekist á útbrunnin
Næst þegar þú ert að fara eitthvað
Þú lendir í talsverðum frosthörkum
blys fljótlega eftir áramót-
prófaðu að beygja til hægri í stað
í janúarmánuði eins og reyndar allir
in , jafnvel skotkökur frá skátunum .
þess að halda beint áfram , svo til
aðrir sem verða á svipuðum slóðum
Finndu allt hið góða sem býr innra
vinstri og aftur til vinstri og svo
og þú . Prófaðu að vera í bikiní á
með þér og sendu það til Afríku .
hægri og þá ertu komin ( n ) þangað .
þrettándanum og sjáðu hvað gerist .
Fiskarnir 19 . feb . - 20 . mars Þér finnst eins og viljastyrkur þinn sé að vaxa og það kemur sér vel þann sjötta þegar þú þarft að velja hvort þú skellir þér í sjósund eða verðir bara heima í rólegheitum .
Krabbinn 22 . júní - 22 . júlí Því miður er krabbamerkið svo langt í burtu núna að það er ekki nokkur leið að lesa í það af einhverju viti . Láttu þetta ekki á þig fá en mundu samt að muna eftir því .
Sporðdrekinn 24 . okt . - 21 . nóv . Þú lest stjörnuspána þína í Myndum mánaðarins og serð straks tvær stafsetningarvillur . Þú vonar að þú finnir ekki eina villu í viðbót en því miður þá bregst sú von algerliga .
Hrúturinn 21 . mars - 19 . apríl
Þú finnur fimmkall annað hvort þann tíunda eða tólfta , eða báða dagana sem gerir þá samtals tíkall . Þetta eru e . k . skilaboð til þín og væri gaman að vita hvað þau þýða .
Nautið 20 . apríl - 20 . maí
Aeðnis sjnluölstu nutain gtea liesð sjtusöárnpna snía að þsesu snini en hin nuaitn , þsesi himkseu , vreða braa að ltáa sér ngjæa að hfora hmisuklegea á hnaa . Hrovt ert þú ?
Ljónið 23 . júlí - 22 . ágúst
Það bendir ýmislegt til að þú rekist á nokkra erlenda ferðamenn fljótlega , en einnig gæti verið um að ræða Íslendinga sem líta út eins og erlendir ferðamenn . Skoðaðu málið .
Meyjan 23 . ágúst - 22 . sept .
Þú vinnur stóra pottinn í lottóinu fljótlega ef þú notar réttu tölurnar sem eru 16 , 5 , 28 , 32 , 39 og 18 . Athugaðu samt að ekki er víst að þær verði allar dregnar út í einu .
Bogmaðurinn 22 . nóv . - 21 . des .
Reyndu að nota næsta ár í að þróa húmorinn dálítið áfram og helst upp á við þannig að þú fattir flóknari brandara en hingað til . Ekki segja stuttara heldur styttra .
Steingeitin 22 . des . - 19 . jan .
Það sem einkenna mun janúar hjá steingeitinni er gleði og enn meiri gleði . Dálítill viðrekstur með eggjalykt setur að vísu strik í reikninginn þann sextánda en það reddast .

Stórmerkilegar staðreyndir , eða þannig ...

Mark Wahlberg heitir fullu nafni Mark Robert Michael Wahlberg , en ættarnafn hans er af sænskum uppruna því afi hans í föðurættina var sænskur innflytjandi í Bandaríkjunum . Mark er yngstur af níu systkinum og á fjögur börn með eiginkonu sinni , Rheu Durham .
John Gavin Malkovich er Króati í föðurættina .
Kate Hudson og Liv Tyler hafa verið trúnaðarvinkonur í 30 ár .
Áður en Mel Gibson var boðið að leika Martin Riggs í fyrstu Lethal Weapon-myndinni var Christopher Lambert boðið hlutverkið . Hann hafnaði því .
Faðir Vincents Cassel , Jean- Pierre Cassel , var einn af vinsælustu leikurum Frakka á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar þegar hann lék í fjölmörgum rómantískum gamanmyndum á móti stærstu frönsku kvenstjörnum þess tíma eins og t . d . Jean Seberg , Brigitte Bardot , Claude Jade , Catherine Deneuve , Stéphane Audran og Marie Dubois . Þess má geta að Jean-Pierre sló fyrst í gegn 1957 þegar Gene Kelly bauð honum hlutverk í Parísarmynd sinni , The Happy Road .
Frank Zappa eignaðist fjögur börn með eiginkonu sinni Adelaide Gail Sloatman . Þau heita Diva , Moon Unit , Dweezil og Ahmet . Faðir Franks , Francis Vincent Zappa , var Ítali og foreldrar móður hans einnig , en móðirin , Rose Marie Colimore , var fædd í Bandaríkjunum .
Jack Huston er barnabarn leikstjórans Johns Huston og þau Anjelica Huston og Danny Huston eru föðursystkini hans .
Emily Blunt heitir fullu nafni Emily Olivia Leah Blunt .
Þegar Coen-bræður voru að fara af stað með sína fyrstu mynd , Blood Simple , höfðu þeir augastað á Holly Hunter í aðalkvenhlutverkið eftir að hafa séð hana leika í leikritinu Crimes of the Heart í New York . Vegna annarra skuldbindinga gat Holly þó ekki þegið boðið og svo fór að herbergisfélagi hennar , Frances McDormand , var ráðin í staðinn . Þremur árum síðar buðu Coen-bræður Holly hins vegar aðalhlutverkið í Raising Arizona og þar með hófst kvikmyndaferill hennar .
Chris Pratt bjó í húsvagni í Los Angeles þegar hann fékk sitt fyrsta kvikmyndahlutverk .
6 Myndir mánaðarins