Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í eitthvert kvikmyndahúsanna ? Finndu þá flöskuna og taktu þátt í leiknum !
Myndir mánaðarins
Gleðilegt nýtt kvikmyndaár 2017
Enn eitt árið er á enda og um leið og við kveðjum það fögnum við því nýja sem allt bendir til að verði skemmtilegt kvikmyndaár og í þessu blaði kynnum við ellefu nýjar og mjög ólíkar myndir sem frumsýndar verða í kvikmyndahúsunum í janúar . Þetta eru myndirnar Monster Trucks , The Great Wall , Patriot ´ s Day , La La Land , Hjartasteinn , xXx : Return of Xander Cage , Silence , Resident Evil : The Final Chapter , Split , Live By Night og teiknimyndin um Billa Blikk .
Frönsk kvikmyndahátíð
Hin árlega Franska kvikmyndahátíð verður að þessu sinni haldin frá 25 . janúar til 10 . febrúar og hér aftar í blaðinu kynnum við þær ellefu myndir sem þar verða sýndar , en fimm þeirra verða að þessu sinni einnig sýndar í Borgarbíói á Akureyri .
Bestu myndir ársins 2016 / helstu myndir febrúarmánaðar
Við erum með dálítið yfirlit í blaðinu yfir þær myndir sem algengast er að sjá á topp 10-listum gagnrýnenda nú í lok árs yfir bestu myndirnar 2016 svo og yfirlit yfir helstu myndir febrúarmánaðar .
Vinsælast á árinu 2016
Einnig er að venju að finna í blaðinu samantekt okkar á vinsælustu bíómyndum ársins 2016 í íslenskum kvikmyndahúsum .
Þess utan eru í blaðinu nokkrar stuttar greinar um hitt og þetta og kynningar á góðri DVD- og VOD-útgáfu mánaðarins auk föstu liðanna . Enn fremur viljum við vekja athygli tölvuleikjaunnenda á kynningu í hinum hluta blaðsins á nýja VR-búnaðinum fyrir PlayStation 4 sem kemur í búðir 24 . janúar .
- Ritstjóri .
Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í eitthvert kvikmyndahúsanna ? Finndu þá flöskuna og taktu þátt í leiknum !
Leikurinn er ekki flókinn . Þú þarft að finna litla flösku sem einhver hefur gleymt á einni síðunni bíómegin í blaðinu og lítur út eins og þessi :
Ef þú finnur flöskuna og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á facebook . com / myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með skilaboðum , þ . e . númerið á blaðsíðunni þar sem flaskan er . Ekki gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu .
Frestur til þátttöku er til og með 21 . janúar . Valið verður af handahófi úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn vinningshafa síðan birt á Facebook-síðunni okkar og í næsta tölublaði blaðsins sem kemur út í lok janúar .
Vinningshafar í síðasta leik , finndu jólagjöfina :
Guðmundur Freyr Kristjánsson , Efstasundi 73 , 104 Reykjavík Árni Tómas Ingólfsson , Bíldsbrún 1 , 801 Selfossi Agnes Lóa Gunnarsdóttir , Vesturbergi 118 , 111 Reykjavík Steinunn Steinþórsdóttir , Víðiteig 8d , 270 Mosfellsbæ Anna K . Ómarsdóttir , Heiðmörk , Laugarási , 801 Selfossi
Takk fyrir þátttökuna !
4 Myndir mánaðarins
MYNDIR MÁNAÐARINS
276 . tbl . janúar 2017 Útgefandi : Myndmark , Trönuhrauni 1 , 220 Hafnarfirði , sími 581-1433 Heimasíða : www . myndirmanadarins . is Ábyrgðarmaður : Stefán Unnarsson / myndmark @ islandia . is Ritstjórn / Texti / Umbrot : Bergur Ísleifsson / gbergur @ gmail . com Próförk : Veturliði Óskarsson Prentun / Bókband : Ísafoldarprentsmiðja Upplag : 24.000 eintök