Hjartasteinn Uppvaxtarsaga
Hjartasteinn
Mynd sem enginn má missa af
Einstök og eftirminnileg saga um tvo drengi , Kristján og Þór sem búa í fámennu sjávarþorpi , og hvernig allt þróast og breytist í lífi þeirra þegar annar þeirra verður hrifinn af stúlku um leið og hinn uppgötvar að hann ber ástarhug til vinar síns .
Hjartasteinn er fyrsta mynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd en hann á að baki nokkrar stuttmyndir , þar á meðal verðlaunamyndirnar Ártún og Hvalfjörður . Hjartasteinn hefur að undanförnu farið sigurferðir á ýmsar kvikmyndahátíðir erlendis , sankað að sér hverjum verðlaununum á fætur öðrum og hlotið hreint frábæra dóma bæði gagnrýnenda og áhorfenda . Ekki síst þykja þeir Blær Hinriksson og Baldur Einarsson , sem eru hér báðir að leika í sinni fyrstu bíómynd , sýna gríðarlegt öryggi og leikskilning í vandasömum aðalhlutverkum vinanna Þórs og Kristjáns .
Þess utan þykir Hjartasteinn óaðfinnanlega gerð og leikin í alla staði og sviðið , sem segja má að sé sjálf náttúra Íslands , hefur vakið mikla athygli og er stórkostlega fangað af kvikmyndatökumanni myndarinnar , Sturlu Brandth Grøvlen . Þetta er mynd sem enginn Íslendingur ætti að missa af , en hún verður frumsýnd 13 . janúar .
Hjartasteinn Uppvaxtarsaga
Aðalhlutverk : Baldur Einarsson , Blær Hinriksson , Diljá Valsdóttir , Katla Njálsdóttir , Jónína Þórdís Karlsdóttir , Rán Ragnarsdóttir , Nína Dögg Filippusdóttir , Sveinn Ólafur Gunnarsson og Søren Malling Leikstjórn : Guðmundur Arnar Guðmundsson Bíó : Smárabíó , Háskólabíó , Borgarbíó Akureyri , Selfossbíó , Skjaldborgarbíó , Bíóhöllin Akranesi , Króksbíó og Ísafjarðarbíó
129 mín
Frumsýnd 13 . janúar
Þeir Blær Hinriksson og Baldur Einarsson leika vinina Þór og Kristján af miklu öryggi og skapa persónur sem enginn áhorfandi gleymir .
Punktar ....................................................
l Hjartasteinn var að mestu tekin upp haustið 2015 í Borgarfirði eystri , Seyðisfirði , Vopnafirði og Dyrhólaey .
l Skoðið endilega afar góða stikluna úr myndinni .
Höfundur Hjartasteins er Guðmundur Arnar Guðmundsson , en sagan í myndinni er að hluta til sótt í hans eigin reynslubanka .
Diljá Valsdóttir og Katla Njálsdóttir eru ekki síður en strákarnir frábærar í hlutverkum sínum sem vinkonurnar Beta og Hanna .
28 Myndir mánaðarins