Patriots Day Sannsögulegt
Patriots Day
Dagurinn sem enginn gleymir
Þann 15 . apríl 2013 sprungu tvær sprengjur með tólf sekúndna millibili við endalínu maraþonhlaupsins í Boylston-stræti í Boston með þeim afleiðingum að þrír áhorfendur létu lífið og um 264 slösuðust , margir mjög alvarlega . Bíómyndin Patriots Day er um það sem gerðist næst – og næstu daga á eftir .
Patriots Day er nýjasta mynd Peters Berg og um leið þriðja myndin í röð sem hann gerir með Mark Wahlberg í aðalhlutverki , en þær fyrri eru gæðamyndirnar Lone Survivor og Deepwater Horizon sem eins og Patriots Day voru byggðar á sönnum atburðum .
Sprengjutilræðið í Boylston-stræti leiddi af sér viðamestu aðgerð í sögu lögreglunnar í Boston enda kom ekkert annað til greina en að hafa sem allra fyrst uppi á þeim sem ábyrgð báru á voðaverkinu því á meðan þeir fengju enn um frjálst höfuð strokið gat enginn í borginni verið öruggur um líf sitt og ástvina sinna ...
Patriots Day Sannsögulegt
Aðalhlutverk : Mark Wahlberg , Michelle Monaghan , Kevin Bacon , John Goodman , Melissa Benoist og J . K . Simmons Leikstjórn : Peter Berg Bíó : Laugarásbíó , Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri
133 mín
Frumsýnd 13 . janúar
Mark Wahlberg leikur lögregluforingjann Tommy Saunders sem lendir í miðri hringiðunni þegar sprengjurnar springa .
Punktar .................................................... HHHH1 / 2 - Playlist HHHH - Variety HHHH - Guardian l Eins og í myndunum Lone Survivor og Deepwater Horizon var lögð gríðarleg áhersla á það í Patriots Day að endurskapa atburðarásina á sem sannferðugastan hátt þannig að áhorfendur gætu upplifað bæði sorgina og óttann sem greip um sig á meðal íbúa borgarinnar og ekki síður hina æsispennandi leit lögreglunnar að tilræðismönnunum sem bar loks árangur eftir fjóra daga – en ekki áfallalaust .
l Leikstjórinn Peter Berg skrifaði einnig handrit myndarinnar í samvinnu við Matt Cook og Joshua Zetumer og einn helsti ráðgjafi þeirra var Edward F . Davis sem John Goodman leikur í myndinni .
Michelle Monaghan leikur eiginkonu Tommys Saunders , Carol , sem er á meðal áhorfenda við endalínuna daginn örlagaríka .
Veistu svarið ? Heiti myndarinnar , Patriots Day , á við daginn 19 . apríl þegar tilræðismennirnir tveir náðust , en 19 . apríl er mikilvægur í bandarískri sögu því þann dag árið 1775 gerðust atburðir sem síðan hafa verið taldir upphafið að ... hverju ?
Kevin Bacon leikur alríkislögreglumanninn Richard DesLauriers og John Goodman leikur lögreglustjórann Edward F . Davis .
24 Myndir mánaðarins
Frelsisstríðinu , sem leiddi til stofnunar Bandaríkjanna .