Myndir mánaðarins Febrúar 2017 tbl. 277 DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 6

Stjörnuspá mánaðarins

Vatnsberinn 20 . jan . - 18 . feb .
Tvíburarnir 21 . maí - 21 . júní
Vogin 23 . sept . - 23 . okt .
Nú þegar þorrinn er genginn í
Það verður uppi fótur og fit í fjölskyldunni
Þér hættir til að ofmeta getu þína ,
garð eru blikur á lofti hjá vatnsberum
febrúar þegar tveir úr
sérstaklega ef um er að ræða verk
og ekki bara norðurljósin
henni breytast skyndilega í heiðargæsir
sem krefjast bæði líkamlegs styrks
heldur bendir allt til að þú kaupir
. Íhugaðu að flytja til Namibíu ,
og huglægrar getu . Komdu við og
þér vasaljós um miðjan mánuðinn .
Venesúela , Gambíu eða Noregs .
kauptu brauðhleif á leiðinni heim .
Fiskarnir 19 . feb . - 20 . mars Fólk í kringum fertugt sem er fætt í fiskamerkinu er oft og tíðum dálítið utan við sig , ekki síst í námunda við sjoppur og bensínstöðvar . Mundu þetta næst þegar þú dælir .
Krabbinn 22 . júní - 22 . júlí Kulsækið fólk í krabbanum mun öðlast glænýja sýn á lífið og tilveruna í kringum tuttugasta febrúar þegar undarlegir menn í brúnum jakkafötum koma og sækja það .
Sporðdrekinn 24 . okt . - 21 . nóv . Þú fyllist skyndilega þörf fyrir að láta eitthvað gott af þér leiða en sérð að þér áður en skaði hlýst af . Einhver sem þú kannast lítillega við fer með rútu til Reyðarfjarðar .
Hrúturinn 21 . mars - 19 . apríl
Það er einhver lukka í loftinu hjá hrútum í febrúar og við sjáum þá vinna eitthvað rautt í mánuðinum , sennilega tómatsósu . Láttu taka úr þér nokkra gamla taugaenda .
Nautið 20 . apríl - 20 . maí
Ástamálin verða ofarlega í huga þér næstu vikurnar án þess að fyrir því sé nokkur einasta ástæða . Ekki borða neitt úr bréfpoka á næstunni því það mun hafa afleiðingar .
Ljónið 23 . júlí - 22 . ágúst
Reyndu að auka vinnuhraða þinn , einbeitingu og afköst án þess að hálsbrotna . Þú gerir eitthvað sem þú hefur aldrei gert áður en átt aldrei eftir að gera aftur .
Meyjan 23 . ágúst - 22 . sept .
Þér líður dálítið eins og svíni þessa dagana og þá erum við ekki að tala um vörtusvín heldur bara venjulegan aligrís sem hefur alist upp í svínastíu ásamt hinum svínunum .
Bogmaðurinn 22 . nóv . - 21 . des .
Það er kominn tími til að þú finnir þér eitthvert áhugamál , helst eitthvað sem krefst ekki mikilla vitsmuna . Mundu eftir að vera með tvær rörtangir á þér þann nítjánda .
Steingeitin 22 . des . - 19 . jan .
Það má segja að þú glímir við allt litróf tilfinninganna í einu þessa dagana sem bendir sterklega til að þú þurfir að skipta um gleraugu . Hafðu munninn lokaðan á morgun .

Stórmerkilegar staðreyndir , eða þannig ...

Duncan Jones , sem leikstýrði m . a . bíómyndunum Source Code og Warcraft , er sonur Davids Bowie og fyrrverandi eiginkonu hans , Mary Angelu Barnett . Hann heitir fullu nafni Duncan Zowie Haywood Jones .
Evan Rachel Wood er með svarta beltið í tae kwon do . Hún og fyrrverandi eiginmaður hennar , Jamie Bell , sem lék Billy Elliott í samnefndri mynd , eiga saman son .
Uppáhaldsmynd Andrews Garfield og ein fárra mynda sem fengið hafa hann til að fella tár er In the Name of the Father .
Margot Robbie getur haldið niðri í sér andanum í fimm mínútur . Hún þjálfaði sig í þessu á meðan tökur á Suicide Squad stóðu yfir .
Fyrsta myndin sem Viggo Mortensen lék í var Witness .
Frank Langella er fyrst og fremst sviðsleikari og hefur sem slíkur unnið til fernra Tonyverðlauna á ferlinum .
Mel Gibson heitir fullu nafni Mel Columcille Gerard Gibson . Hann er fæddur í New Yorkríki í Bandaríkjunum 3 . janúar 1956 og flutti ásamt foreldrum sínum til Ástralíu fjögurra ára að aldri , en amma hans í föðurættina var ástralska óperusöngkonan Eva Mylott . Afi hans í föðurættina var hins vegar írskur Bandaríkjamaður svo og móðir hans , en báðir foreldrar hennar voru Írar .
Kvikmyndaferill Rachel Weisz hófst árið 1994 þegar hún var 24 ára en hann hefði getað hafist tíu árum fyrr þegar Richard Gere bauð henni hlutverk í myndinni King David . Hún vildi þiggja það en foreldrar hennar leyfðu henni það ekki .
Gemma Arterton fæddist með sex fingur á hvorri hendi .
Regina Hall er fjölmiðlafræðingur að mennt og útskrifaðist með meistaragráðu í faginu frá háskólanum í New York 1997 . Tveimur árum síðar ákvað hún að leggja leiklistina fyrir sig .
Iggy Pop byrjaði að kalla sig Iggy í höfuðið á sinni fyrstu hljómsveit , The Iguanas .
6 Myndir mánaðarins