Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 14
Unlocked
Hver einasta mínúta gæti orðið sú síðasta
Þegar yfirheyrslusérfræðingurinn Alice Racine, sem vinnur
fyrir CIA, er kölluð til að yfirheyra meintan hryðjuverkamann
áttar hún sig ekki fyrr en of seint á því að yfirheyrslan er í raun
gildra, sett á svið til að veiða upplýsingar upp úr henni sjálfri.
Þannig hefst njósnatryllirinn Unlocked eftir leikstjórann Michael
Apted sem á langan feril og margar góðar myndir að baki eins og
t.d. Coal Miner’s Daughter, Gorky Park, Gorillas in the Mist, Blink,
Extreme Measures, Enigma og fleiri. Unlocked er þrælgóð mynd
fyrir þá sem vilja spennu, hasar, óvænta atburðarás og fléttur.
Um leið og Alice áttar sig á að hún hefur gengið í gildru og í raun
gefið hryðjuverkamönnum mikilvægar upplýsingar í stað þess að
afla þeirra eins og starf hennar snýst um kemur í ljós að í bígerð er
að gera sýklavopnaárás á London sem myndi hafa skelfilegar
afleiðingar í för með sér. Þá áætlun þarf að stöðva en vandamálið
er að nú veit Alice ekki lengur hverjum hún getur treyst ...
Unlocked
Noomi Rapace leikur yfirheyrslusérfræðinginn Alice Racine
sem kemst á snoðir um áætlun um að gera sýklavopnaárás
á London og á eftir það fullt í fangi með að halda lífi.
Spenna / Hasar
98
VOD
mín
Aðalhlutverk: Noomi Rapace, Orlando Bloom, Michael Douglas,
Toni Collette og John Malkovich Leikstjórn: Michael Apted
Útgefandi: Sena
1. desember
Punktar ....................................................
HHH 1/2 - Chicago Tribune HHH 1/2 - Village Voice
Handrit Unlocked er eftir Peter O’Brien og var árið 2008 á svarta
listanum í Hollywood yfir áhugaverðustu ókvikmynduðu handritin.
l
Myndin inniheldur nokkur hörkugóð hasar- og slagsmálaatriði og
við tökur á einu þeirra fékk Noomi Rapace vænt högg með þeim
afleiðingum að hún nefbrotnaði og vankaðist um leið. Eftir að hafa
jafnað sig og í ljós kom að henni hafði ekki orðið meira meint af
högginu en að nefbrotna héldu tökur áfram eins og ekkert hefði í
skorist og hún lét ekki laga brotið fyrr en eftir að þeim lauk.
l
Toni Collette er í einu af þremur stærstu aukahlutverkunum í
myndinni en í hinum eru þau Michael Douglas og John Malkovich.
Veistu svarið?
Eins og margir vita ólst leikkonan Noomi Rapace
upp á Íslandi til fimmtán ára aldurs þegar hún flutti
til Svíþjóðar en leiklistaráhugi hennar kviknaði þeg-
ar hún lék lítið hlutverk í íslenskri mynd árið 1987,
átta ára gömul. Hvaða mynd er um að ræða?
Orlando Bloom leikur fyrrverandi sérsveitarmann sem býðst
til að aðstoða Alice, en hún á erfitt með að treysta honum.
Í skugga hrafnsins.
14
Myndir mánaðarins