Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 10
Myndasyrpa
10
Á meðan við hér á Íslandi þurftum að þola
fyrstu meiriháttar snjókomu vetrarins og
tilheyrandi vetrarkulda spókaði Olivia Wilde
sig á brimbrettinu á Hawaii 23. nóvember. Á sama tíma var Anna Kendrick hins vegar í
Vancouver í Kanada að taka upp skautaatriði í
myndinni Noelle eftir Marc Lawrence, en í
henni leikur Anna dóttur jólasveinsins. Bræðurnir James og Dave Franco voru hinir
hressustu þegar þeir sóttu forsýningu myndar
sinnar The Disaster Artist í London 22. nóvem-
ber, en hún hefur hlotið frábærar viðtökur.
New York-búinn Reese Witherspoon var aldrei
þessu vant stödd í Beverly Hills 22. nóvember,
e.t.v. til að ganga frá samningsatriðum í tengsl-
um við myndir sínar Tinkerbell og Wish List. Lily Collins og Robert Pattinson stilltu sér upp
saman í Santa Monica 21. nóvember þar sem
þau sóttu ásamt mörgum frægum uppboð á
vegum Go Campaign-góðgerðarsamtakanna. Jessica Alba sótti hins vegar viðburð á vegum
barnavörufyrirtækisins The Honest Company í
Los Angeles 18. nóvember, en hún á eins og
sést von á sínu þriðja barni innan tíðar.
Myndir mánaðarins