Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 Bíó | Page 8
Bíófréttir – Væntanlegt
sem fjallar eins og nafnið bendir
til um fólk sem var uppi á steinöld.
Þetta er reyndar ekki teiknuð
mynd heldur brúðumynd í anda
Wallace og Gromit-myndanna og
myndanna um hrútinn Hrein, eða
Shaun the Sheep eins og hann
heitir á ensku. Þessi mynd er
væntanleg í bíó í febrúar.
Óskarinn sjálfan í mars. Kíkið endi-
lega á stikluna en Lady Bird er á
dagskrá kvikmyndahúsanna hér á
landi í apríl næstkomandi.
Kvikmynd Kenneths Branagh,
Morðið í Austurlandahraðlestinni,
hefur gengið vel eins og við var
að búast, en hún er eins og allir
vita byggð á samnefndri bók eftir
morðgáturithöfundinn
Agöthu
Christie. Nú herma fregnir að
Kenneth hafi verið ráðinn til að
gera aðra Agöthu Christie-mynd,
í þetta sinn eftir bókinni Dauðinn
á Níl sem er ekki síður þekkt saga
en sú fyrrnefnda. Kenneth mun að
sjálfsögðu leika belgíska rannsókn-
arlögreglumanninn Hercule Poirot
á ný í þeirri mynd og það má alveg
búast við að leikhópurinn verði
stjörnum prýddur.
þá útgáfu af honum sem býr í
Himalajafjöllu m og hefur líka verið
kallaður Snjómaðurinn. Í þessari
sögu er gert ráð fyrir að hann eigi
stóra fjölskyldu sem hann eigi til
að hræða með sögum af litlum
mönnum með litla fætur, þ.e.
mannfólkinu. Þegar einn slíkur
klifrar síðan upp á tindinn þar
sem Snjómaðurinn býr fá þessar
„hryllingssögur“ auðvitað byr
undir báða vængi. Smallfoot er
væntanleg í bíó næsta haust.
Þriðja myndin um Drakúla sem
nú rekur Hótel Transylvaníu er líka
væntanleg næsta sumar og segir
frá því þegar Drakúla fer sjálfur í frí
ásamt fjölskyldunni með risastóru
farþegaskipi og verður ástfanginn
af skipstjóranum, henni Ericu.
Í nóvember var ný örstikla, eða kitla
eins og stuttar stiklur eru stundum
kallaðar, frumsýnd úr næstu
Pixar-mynd sem um leið er önnur
myndin um John Parr, öðru nafni
herra Ótrúlegan (Mr. Incredible) og
fjölskyldu hans, en hún er gædd
ótrúlegum ofurhæfileikum eins og
flestir vita. Fyrri myndin sem var
frumsýnd árið 2004 er að margra
mati ein af bestu Pixar-myndunum
fyrr og síðar og tvímælalaust sú
fyndnasta og það er full ástæða
til að fara að láta sig hlakka til
júnímánaðar þegar nýja myndin
verður frumsýnd. Kíkið endilega
á kitluna sem er bráðskemmtileg
þótt hún sé stutt og gefi lítið sem
ekkert upp um söguna sjálfa.
Og talandi um teiknimyndir þá
má geta þess að margar slíkar
eru í bígerð hjá ýmsum aðilum
enda njóta góðar og vel gerðar
teiknimyndir oftar en ekki mikilla
vinsælda í kvikmyndahúsum.
Af þeim sem frumsýndar verða
á næsta ári má nefna myndina
Smallfoot en hún er nokkurs konar
spegill sögunnar um Stórfót, þ.e.
8
Myndir mánaðarins
Breska myndin Pétur kanína er
byggð á samnefndum sögum
Beatrix Potter um Pétur kanínu
og vini hans sem lenda í miklum
útistöðum við nágranna sinn, en
honum er meinilla við að hafa dýr
í garðinum sínum. Þessi mynd er
reyndar bæði teiknuð og leikin,
þ.e. mannfólkið er leikið en dýrin
teiknuð eins og t.d. í Paddington.
Hún kemur í bíó í lok mars.
Fjórða myndin sem við nefnum
er líka bresk, en það er Early Man
Þá er væntanleg ný mynd um
garðálfana sem á ensku nefnist
Sherlock Gnomes og er gerð af
sömu aðilum og gerðu Kung Fu
Panda-myndirnar. Þessi mynd lofar
ákaflega góðu og er hún vænt-
anleg í kvikmyndahúsin í maí.
Að lokum viljum við nefna mynd-
ina Önd, önd, gæs, eða Duck Duck
Goose sem væntanleg er í bíó í
byrjun apríl. Stiklan úr þeirri mynd
er mjög skemmtileg og fyndin en
sagan er um gæs sem í staðinn
fyrir að fljúga suður á bóginn til
vetursetu neyðist til að vera heima
og sjá um tvo litla andarunga sem
reynast hálfgerðir óþekktarormar
þegar á reynir.
Þessar myndir sem við höfum nefnt
hér að framan eru auðvitað bara
hluti þeirra teiknuðu og handgerðu
mynda sem væntanlegar eru á
árinu 2018 en umfjöllun um allar
hinar bíður næstu blaða.
Fyrsta mynd Bradleys Cooper
sem leikstjóra er væntanleg í bíó í
maí og heitir A Star is Born. Hún er
eins og nafnið bendir til byggð á
samnefndri mynd frá árinu 1937
sem naut gríðarlegra vinsælda á
sínum tíma og sagði frá ungri konu
sem kemur til Hollywood að freista
gæfunnar. En leiðin á toppinn
reynist ekki eins greið og hún var að
vona og sá eini sem vill hjálpa henni
er sjálfur útbrunninn leikari og
alkóhólisti sem virðist í fyrstu ekki
líklegur til afreka fyrir hennar hönd.
Eins og þeir vita sem þekkja til eldri
mynda hefur þessi tiltekna saga
nokkrum sinnum verið kvikmynduð
og eru þekktustu útgáfurnar frá
1954 með Judy Garland og James
Mason í aðalhlutverkum og svo frá
árinu 1973 þar sem Barbra Streisand
og Kris Kristofferson fóru með
aðalhlutverkin. Í nýju myndinni eru
það þau Bradley Cooper sjálfur og
Bonnie Somerville sem fara með
þessi hlutverk og verður gaman
að sjá útkomuna, en sagan er
einstaklega góð og vonandi hefur
Bradley tekist vel upp með gerð
þessarar myndar.
Robert Zemeckis, sem slær vart
feilnótu í kvikmyndagerð, er nú að
leikstýra sinni næstu mynd en hún
heitir The Women of Marwen og er
fantasía sem sækir innblásturinn í
sannsögulega atburði. Aðalpers-
ónan er listamaðurinn og ljósmynd-
arinn Mark Hogancamp sem lenti í
því í apríl árið 2000 að fimm menn
réðust á hann og börðu hann nánast
til ólífis. Mark lifði þó af og eftir að
hafa verið í dái í níu daga vaknaði
hann á sjúkrahúsi gjörsamlega
minnislaus. Í ljós kom að hann hafði
orðið fyrir heilaskemmdum og eftir
að hafa verið á sjúkrahúsi í 40 daga
í viðbót þurfti hann að byggja líf
sitt frá grunni. Til þess greip hann
til óvenjulegra ráða sem áttu eftir
að vekja mikla athygli en um þau
gerði kvikmyndagerðarmaðurinn
Jeff Malmberg heimildarmyndina
Marwencol árið 2010. Sú mynd hlaut
fjölmörg verðlaun og er á meðal
bestu heimildarmynda þess árs.
Með aðalhlutverkið í mynd Roberts,
hlutverk Marks Hogancamp, fer
Steve Carell og í öðrum stórum
hlutverkum eru Diane Kruger, Eiza
González, Gwendoline Christie,
Leslie Mann og Matt O’Leary, auk
eiginkonu Roberts, Leslie Zemeckis.
Myndina á að frumsýna í nóvember
á næsta ári og það má alveg reikna
með að hún eigi eftir að verða ein af
myndum ársins 2018. Þeir sem vilja
kynna sér söguna betur ættu að
kíkja á áðurnefnda heimildarmynd.