Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 Bíó | Page 30
Ferdinand
Jólateiknimyndin í ár!
Teiknimyndin um stóra, sterka en góðhjartaða nautið Ferdin-
and er frá þeim sömu og gerðu Ísaldar- og Rio-myndirnar og
er byggð á þekktustu sögu rithöfundarins Munros Leaf sem
gaf hana út árið 1936 með teikningum eftir Robert Lawson.
Allt frá því að nautið Ferdinand var kálfur hefur hann verið ólíkur
öðrum nautum. Á meðan aðrir kálfar vildu helst stangast á og
létu sig dreyma um að komast í nautaatshringinn í Madrid hafði
Ferdinand mun meiri áhuga á að njóta náttúrunnar, blómanna
og litanna sem umhverfi hans býður upp á, auk þess sem hann
getur ekki hugsað sér að gera flugu mein. En örlögin haga því
samt svo að Ferdinand er fyrir misskilning sendur til Madridar til
að berjast og verður með aðstoð nokkurra félaga sinna að losa sig
úr ánauðinni og finna leiðina heim áður en það er orðið of seint ...
Ferdinand verður fumsýnd á annan dag jóla og er kjörin fjölskyldu-
skemmtun, ljúf, fyndin, leiftrandi fjörug og hæfilega spennandi.
Ferdinand
Punktar ....................................................
Teiknimynd
94
mín
Íslensk talsetning: Hjörtur Jóhann Jónsson, Sigríður Eyrún Friðriks-
dóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Jón Stefán Kristjánsson, Orri Huginn
Ágústsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Ævar Þór Benediktsson, Katla
Margrét Þorgeirsdóttir, Steinn Ármann Magnússon, Þórunn Arna
Kristjánsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason o.fl. Leikstjórn: Rósa Guðný
Þórsdóttir Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó, Sambíóið Álfa-
bakka, Borgarbíó Akureyri, Selfossbíó, Skjaldborgarbíó, Ísafjarðarbíó,
Króksbíó, Bíóhöllin Akranesi og Eyjabíó
Frumsýnd 26. desember
30
Myndir mánaðarins
Ferdinand verður sýnd með íslensku og ensku talsetningunni, en
einnig með pólskri talsetningu og er það í fyrsta sinn sem upp á
það hefur verið boðið í íslensku kvikmyndahúsi.
l