Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 Bíó | Page 20
Jigsaw
Sannleikurinn verður ekki grafinn
Ráðgátan um Jigsaw-morðingjann svokallaða og ástæðurnar
fyrir morðæði hans var ráðin fyrir nokkrum árum þegar í ljós
kom hver hann var í raun og veru og hvað vakti fyrir honum. En
var morðsagan þar með öll sögð eða býr hér meira að baki?
Jigsaw er sjálfstætt framhald af Saw-seríunni sem hrollvekjumeist-
arinn James Wan hleypti af stokkunum árið 2004. Hún segir frá því
þegar rannsókn lögreglu á nokkrum óhugnanlegum morðum leiðir
í ljós að allar aðstæður og aðferðir sem morðinginn hefur notað til
að murka lífið úr fórnarlömbunum benda ótvírætt til að þar sé á
ferðinni enginn annar en John Kramer, öðru nafni Jigsaw, sem gerði
lögreglunni lífið leitt fyrr á árum með hefndarmorðum sínum.
Vandamálið við þessa kenningu er að John er búinn að vera undir
grænni torfu í tíu ár þannig að annað hvort er hann risinn upp
frá dauðum eða morðinginn, hver sem hann er, gjörþekkir að-
ferðir hans svo vel að hann hlýtur að hafa haft aðgang að öllum
smáatriðum í rannsóknargögnum lögreglunnar á sínum tíma – nú,
eða að hann hafi hreint og beint þekkt Jigsaw og aðferðir hans
betur en nokkur annar og vilji nú halda áfram með áætlun hans ...
Jigsaw
Tryllir / Ráðgáta
92
mín
Aðalhlutverk: Callum Keith Rennie, Clé Bennett, Matt Passmore,
Hannah Emily Anderson, Tobin Bell, Laura Vandervoort, Mandela
Van Peebles, Jesse Plemons og Paul Braunstein Leikstjórn: Michael
og Peter Spierig Bíó: Laugarásbíó, Háskólabíó, Sambíóið Keflavík og
Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 1. desember
Callum Keith Rennie og Clé Bennett leika rannsóknarlögreglumennina
Halloran og Keith sem glíma við að ráða gátuna áður en fleiri láta lífið.
Punktar ....................................................
Leikstjórar myndarinnar eru þýsku bræðurnir Peter og Michael
Spierig, en þeir hafa vakið mikla athygli á undanförnum árum fyrir
góð og fersk tök sín á spennumyndaforminu og eiga m.a. að baki
myndirnar Daybreakers frá árinu 2009 og Predestination sem var
frumsýnd 2014. Þessar myndir fóru ekki mjög hátt en fengu afar
góða dóma, sérstaklega sú síðarnefnda sem margir telja reyndar
eina bestu og frumlegustu vísindaskáldsögu ársins 2014.
l
Þótt sagan í Jigsaw gerist tíu árum eftir að John Kramer dó er að
finna í henni afturhvarf til fortíðarinnar sem kemur á óvart!
l
Þau Ryan, Mitch og Anna eru hluti af þeim hóp í myndinni
sem lendir í dauðagildru hins óþekkta morðingja. Lifa þau af?
Veistu svarið?
Tobin Bell, sem leikur hér á ný morðingjann John
Kramer, hóf leikferilinn með leik í heimsfrægum
myndum leikstjóranna Sydneys Pollack, Sidneys
Lumet og Alans J. Pakula sem allar voru tilnefndar til
fimm Óskarsverðlauna árið 1983. Hvaða myndum?
Tootsie, The Verdict og Sophie’s Choice.
20
Myndir mánaðarins