Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 Bíó | Page 12
Bíófréttir – Væntanlegt í janúar
Kostirnir við að minnka sig
Þrír af aðalleikurum myndarinnar Downsizing stilla sér hér
upp til myndatöku á kvikmyndahátíðinni í Toronto, en þetta
eru eins og sjá má þeir Matt Damon, sem fer með stærsta
hlutverkið, og Christoph Waltz, og á milli þeirra er tælenska
leikkonan Hong Chau sem fer með annað af tveimur stærstu
kvenhlutverkunum ásamt Kristen Wiig.
Downsizing er eftir tvöfalda Óskarsverðlaunahafann Alexander
Payne sem hlaut verðlaunin fyrir myndir sínar The Descendants
og Sideways og á einnig að baki snilldarmyndirnar About Schmidt og Nebraska.
Sem fyrr skrifar Alexander söguna og handritið sjálfur en myndin segir frá samfélagi
framtíðarinnar þar sem mannfólkinu er gefinn kostur á því að láta minnka sig niður í tíu
prósent stærð frá því sem nú er. Helsti samfélagskosturinn við þetta er að þannig má
sporna gegn mannfjölguninni því 10% fólk tekur að sjálfsögðu bara 10% pláss og fyrir
einstaklingana sjálfa er 10% líf auðvitað miklu ódýrara, t.d. húsin, maturinn, orkan, efnið
og fleira sem fólk í fullri stærð þarf að nota í meira mæli. Matt Damon leikur einn þeirra
sem fellur fyrir hugmyndinni og lætur minnka sig en að sjálfsögðu á eftir að koma í ljós
að minnkuninni fylgja líka nokkrir ókostir. Myndin þykir í senn ákaflega fyndin og skörp
samfélagsádeila en hún verður frumsýnd aðra helgina í janúar, nánar tiltekið þann tólfta.
Hver er morðinginn?
Bandaríska leikkonan Frances McDormand fær hér koss
á hvora kinn frá tveimur af helstu mótleikurum sínum í
myndinni Three Billboards Outside Ebbing, Missouri, þeim
Woody Harrelson og Sam Rockwell, þar sem þau voru
viðstödd frumsýninguna á kvikmyndahátíðinni í London
á dögunum. Myndin, sem er eftir enska leikstjórann
Martin McDonagh (In Bruges, Seven Psychopaths), hefur
hlotið frábæra dóma og er þegar komin á lista margra
gagnrýnenda sem ein af tíu bestu myndum ársins 2017
á enskri tungu. Hún hefur enn fremur hlotið fjölmörg
verðlaun og þykir nú afar líkleg til að hljóta a.m.k. fimm til-
nefningar til Óskarsverðlauna, Frances fyrir aðalhlutverk
kvenna, Sam fyrir aukahlutverk karla, Martin fyrir leikstjórn
og handrit og svo myndin sjálf sem besta mynd ársins.
Three Billboards Outside Ebbing, Missouri verður frumsýnd
hér á landi í janúar en hún segir frá konu að nafni Mildred
sem býr í smábænum Ebbing og grípur til sinna ráða
þegar henni finnst lögreglustjórinn og menn hans slá
slöku við í rannsókninni á morði dóttur hennar sem var
myrt fyrir sjö mánuðum. Myndin er því að grunni til saka-
málasaga og morðgáta en um leið svört kómedía og með
helstu hlutverk önnur í henni fara þau Abbie Cornish,
Lucas Hedges, Caleb Landry Jones, Peter Dinklage og
John Hawkes. Skoðið endilega frábærar stiklurnar.
Gátan leyst
Það bíða sjálfsagt margir eftir síðustu myndinni í The Maze Runner-þríleiknum en eins og
kunnugt er slasaðist aðalleikarinn Dylan O’Brien við tökur á henni í mars 2016 með þeim
afleiðingum að fresta þurfti tökum um nokkra mánuði á meðan hann jafnaði sig. Ofan
á það þurfti hann svo einnig að sinna öðrum verkefnum sem hann hafði skuldbundið
sig í og því fór svo að upphafleg frumsýningaráætlun tafðist í heilt ár. En allt er gott sem
endar vel og verður myndin, sem ber undirtitilinn The Death Cure, frumsýnd 26. janúar.
Í henni eru liðin rúmlega þrjú ár frá því að Thomas og félagar hans festust upphaflega í
hinu dularfulla völundarhúsi og nú er komið að því að leysa gátuna í eitt skipti fyrir öll.
12
Myndir mánaðarins
Þau Sam Rockwell og Frances McDormand verða mjög
líklega bæði tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í
Three Billboards Outside Ebbing, Missouri.