Myndir mánaðarins Desember 2016 tbl. 27-1 DVD-hluti | 页面 8

Gullkorn

Ég tel mig vera mjög rómantíska í eðli mínu og því henta rómantísk hlutverk mér vel . Ég finn mig vel í ástarsögum .
- Alicia Vikander .
Það er mun meiri pressa núna en áður að vera í sviðsljósinu og nýtt fólk þarf harðari skráp . Í dag eru t . d . nánast allir með myndavélar og ef maður gerir mistök er það komið á netið og í fjölmiðla tíu mínútum síðar og gleymist aldrei . - Jason Bateman .
Ég elska að fljúga . Mér finnst flugvélamatur mjög góður og mér finnst frábært að blunda í friði og fá engin símtöl , engan tölvupóst og engin skilaboð . Ég skil ekki hvernig fólki getur fundist þreytandi að fljúga þegar það er einmitt svo hundrað prósent afslappandi . - Margot Robbie .
Ekki reyna að vera eins og ég , því það er bara einn ég . Farðu frekar í tölvunám . - Jackie Chan , spurður hvaða ráðleggingar hann gæti gefið ungum leikurum , en sjálfur kann hann ekkert á tölvur .
Að búa til kvikmynd er sextán klukkustunda vinna á sólarhring , sjö daga vikunnar í átján mánuði . Þess vegna langar mann ekki að búa til sömu myndina aftur . - Paul Greengrass , spurður hvers vegna hann hefði upphaflega hafnað því að leikstýra fjórðu Jason Bourne-myndinni .
Mig langar mest til að leika snák . Eða ... nei ... mig langar að leika ofurhetju . - Felicity Jones , spurð um hvert draumahlutverkið sé .
„ Just in case .“ - Jared Leto að svara því hvers vegna hann sé með fallöxi í stofunni hjá sér .
Munurinn á kvikmyndagerð í Evrópu og Bandaríkjunum er að í Evrópu reyna menn að búa til góðar myndir og vona svo að þær seljist en í Bandaríkjunum reyna menn að búa til myndir sem seljast og vona svo að þær verði góðar . - Renny Harlin .
Yfirleitt finnst mér gamanmyndir ekkert fyndnar . Mér fannst hins vegar Raging Bull og Goodfellas fyndnar myndir , í raun með fyndnustu myndum sem ég hef séð fyrir utan Jackass-myndirnar . - Louis C . K .
Mér finnst langskemmtilegast að leika menn sem mér líkar ekki við . - Jason Sudeikis , spurður um skemmtilegasta hlutverkið .
Mitt helsta vandamál er hvað ég veit lítið . Ég vissi t . d . ekki að fólk byggi til listaverk úr smjöri fyrr en ég fletti því upp á Google og uppgötvaði að þar er að finna meira um 550 þúsund greinar og myndir af listaverkum úr smjöri . - Ty Burrell .
Engin borg hefur kennt mér jafnmikið og Los Angeles . Hún kenndi mér hvernig ég vildi alls ekki vera . - Renée Zellweger , sem býr á heimaslóðunum í Texas .
Minn besti og versti galli er að ég tala stöðugt við sjálfa mig . - Kate McKinnon .
Pabbi var ekta New Yorkgyðingur og mamma var ekta New York-írskur kaþólikki . Saman bjuggu þau mig til . Sjálfur er ég ekki mikill trúmaður en mér hefur samt alltaf þótt gott að hafa báðar þessar dyr opnar . - Stephen Lang , um trúmál sín .
Ég get verið alveg ágætur í kvikmyndum en ég er hræðilegur í að vera frægur . - Jonah Hill .
Ég er meingallaður . Erum við ekki öll gölluð ? En æ , ég nenni ekki lengur að afsaka mig . - Mel Gibson .
8 Myndir mánaðarins