Myndir mánaðarins Desember 2016 tbl. 27-1 Bíóhluti | Page 4
Myndir mánaðarins
Gleðileg jól með góðum myndum
Desember er runninn upp enn eina ferðina með tilheyrandi
hátíðarhaldi sem verður vonandi ánægjulegt og gefandi fyrir alla
Íslendinga nær og fjær. Víst er að kvikmyndaáhugafólk fær margt
gott í skóinn í þessum síðasta mánuði ársins enda eru vægast
sagt mjög góðar myndir á dagskrá kvikmyndahúsanna og kennir
þar ýmissa grasa eins og venjulega. Eflaust bíða flestir eftir nýjustu Star Wars-myndinni Rogue One sem prýðir forsíðu blaðsins,
en aðrar myndir mánaðarins má sjá í eftirfarandi upptalningu:
1. des.
1. des.
2. des.
2. des.
7. des.
9. des.
16. des.
26. des.
26. des.
26. des.
30. des.
30. des.
Vaiana
Allied
Underworld 5
Magnus
Office Christmas Party
The Warrior´s Gate
Rogue One: A Star Wars Story
Why Him?
Syngdu
Passengers
Collateral Beauty
Assassin´s Creed
bls. 18
bls. 20
bls. 22
bls. 24
bls. 25
bls. 26
bls. 28
bls. 30
bls. 32
bls. 34
bls. 36
bls. 37
Um allar þessar myndir getur þú lesið nánar hér aftar í blaðinu auk
kynninga á DVD-, BluRay-, VOD- og tölvuleikjaútgáfunni hinum
megin ... að viðbættu ítarefni um myndir mánaðarins, gullkornum,
staðreyndum, stjörnuspánni, topp 20-listanum og myndasyrpum!
- Ritstjóri.
Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í
eitthvert kvikmyndahúsanna?
Finndu þá jólagjöfina og taktu þátt í leiknum!
Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna litla jólagjöf sem einhver jólasveinn hefur gleymt á einni síðunni bíómegin í blaðinu og lítur út eins og þessi:
Ef þú finnur gjöfina og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á
facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með
skilaboðum, þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem jólagjöfin er. Ekki
gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu.
Frestur til þátttöku er til og með 17. desember. Valið verður af
handahófi úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn
vinningshafa síðan birt á Facebook-síðunni okkar og í næsta tölublaði blaðsins sem kemur út á milli jóla og nýárs.
Vinningshafar í síðasta leik, finndu graskerið:
Valur Áki Svansson, Sléttahrauni 25, 220 Hafnafirði
Jóhanna Þorvarðardóttir, Fossvegi 8, 800 Selfossi
Sveinn Logi Pàlsson, Klukkuvöllum 42, 221 Hafnarfirði
Lára Þorvaldsdóttir, Ásatúni 8, 600 Akureyri
Jónella Sigurjónsdóttir, Lækjarmel 9, 301 Akranesi
Takk fyrir þátttökuna!
MYNDIR MÁNAÐARINS
275. tbl. desember 2016
Útgefandi: Myndmark, Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 581-1433
Heimasíða: www.myndirmanadarins.is
Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / [email protected]
Ritstjórn / Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson / [email protected]
Próförk: Veturliði Óskarsson Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja
Upplag: 24.000 eintök
4
Myndir mánaðarins