Myndir mánaðarins Desember 2016 tbl. 27-1 Bíóhluti | Page 28
Rogue One: A Star Wars Story
Uppreisn byggð á von
Forsíðumynd Mynda mánaðarins að þessu sinni, Rogue One, er
jafnframt sú mynd ársins sem kvikmyndaáhugafólk hefur beðið eftir af hvað mestum spenningi, en hún gerist á milli kafla
þrjú og fjögur í Star Wars-sögunni og segir frá því hvernig uppreisnarmenn komust yfir teikningarnar af Dauðastjörnunni.
Rogue One verður frumsýnd á sama tíma í kvikmyndahúsum um
allan heim og má búast við miklu lífi í tuskunum enda þarf ekki að
hvetja Star Wars-aðdáendur til að fjölmenna. Allt í sambandi við
þessa mynd lítur virkilega vel út, bæði kynningarefni og stiklur, og
ekki skemmir fyrir að leikstjóri er hinn frumlegi Gareth Edwards
sem sló í gegn með Monsters árið 2010 og gerði síðan Godzilla árið
2014. Handritshöfundarnir eru heldur ekki af verri endanum, annars vegar Chris Weitz (About a Boy, The Golden Compass, Cinderella)
og hins vegar Tony Gilroy sem skrifaði m.a. Bourne-myndirnar,
Dolores Claiborne, The Devil’s Advocate og Michael Clayton. Við hér
á Myndum mánaðarins hlökkum a.m.k. mikið til að sjá þessa mynd
og grunar að hún eigi eftir að setja glænýtt gæðaviðmið fyrir þær
Star Wars-hliðarsögur sem væntanlegar eru í bíó á komandi árum ...
Rogue One: A Star Wars Story
Star Wars
133
mín
Aðalhlutverk: Felicity Jones, Mads Mikkelsen, Ben Mendelsohn,
Forest Whitaker, Alan Tudyk, Riz Ahmed, Diego Luna, Warwick Davis,
Jimmy Smits og James Earl Jones Leikstjórn: Gareth Edwards
Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík,
Laugarásbíó, Ísafjarðarbíó, Selfossbíó og Bíóhöllin Akranesi
Frumsýnd 16. desember
Felicity Jones og Diego Luna leika tvö stærstu hlutverkin í
Rogue One á samt Alan Tudyk sem leikur vélmennið K-2SO.
Punktar ....................................................
Eins og segir hér í innganginum fyrir ofan gerist Rogue One á
undan þriðja kafla sögunnar, A New Hope sem var fyrsta Star Warsmyndin árið 1977, en einnig hefur verið upplýst að hún gerist fimm
árum eftir atburðina í sjónvarpsþáttunum Star Wars Rebels.
l
Um leið er Rogue One fyrsta myndin í svokallaðri Star Wars Anthology-seríu og segir sagan að næsta mynd muni fjalla um ævintýri
Han Solo áður en hann gekk í lið með uppreisnarmönnum.
l
Tónlistarhöfundur myndarinnar er Óskarsverðlaunahafinn Michael Giacchino (Up, Lost-serían, Doctor Strange) og er þetta því fyrsta
Star Wars-bíómyndin sem John Williams kemur ekki nærri.
l
Ben Mendelsohn leikur hinn snjalla en grimma Orson Krennic sem
hefur yfirumsjón með smíði Dauðastjörnunnar fyrir keisaradæmið.
Veistu svarið?
Felicity Jones hóf leikferilinn aðeins tólf ára að
aldri og var orðin vel þekkt í Bretlandi þegar hún
sló í gegn í sannsögulegum sjónvarpsþáttum árið
2009 þar sem hún lék systur titilpersónunnar. Um
hvaða sjónvarpsþætti erum við að tala?
The Diary of Anne Frank.
28
Myndir mánaðarins