Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Page 8

Gullkorn Það er gott að skapa sér nafn og vera mikilvægur. En það er enn betra að vera góðhjartaður. Þetta sagði einn vinur minn við mig þegar við vorum 15 ára og einhvern veginn varð þetta að ákveðnum áttavita í mínu lífi. - Dwayne Johnson. Michael Haneke, ég elska allar hans myndir. Geturðu ekki komið þeim skilaboðum til hans? - Karen Gillan, spurð hvaða leik- stjóra hún myndi helst vilja vinna með ef hún mætti ráða. Ég man það ekki. Mig minnir að það hafi verið vegna þess að mér leist ekkert á að vera fjögur ár á Nýja-Sjálandi. -Christopher Plummer, spurður að því hvers vegna hann hafnaði hlutverki Gandalfs á sínum tíma. Mér finnst óþægilegt að tala um leiklist. Fyrir mér er leiklistin svo persónuleg reynsla að þegar ég tala um hana finnst mér eins og ég sé að tala um persónuleg mál- efni. Mér finnst óþægilegt að tala opinberlega um mín persónulegu málefni og þess vegna finnst mér óþægilegt að tala um leiklist. - Michelle Williams. 8 Myndir mánaðarins Veistu, ég bara vil ekki vera með svona tæki á mér sem hefur engan tilgang annan en að trufla mann. - Vince Vaughn, sem á ekki farsíma. Ég efast um að til sé starf sem býður upp á jafnmikla eftirsjá og starf leikarans. Eftir því sem starfsævin lengist hrúgast upp svona „ef ég hefði bara“- hugsanir sem geta orðið niðurdrepandi. Þess vegna reynir maður að horfa fram á við en helst ekki í bak- sýnisspegilinn. Hann skilar engu. - Elizabeth McGovern. Menntaða svarið við þessari spurningu er leikur Daniels Day- Lewis í In the Name of the F