Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Page 33

Tölvuleikir God of War Það er komið að nýju upphafi fyrir Kratos í God of War á PlayStation 4. Leikurinn er gerður af Santa Monica Studios og er Cory Barlog við stjórnvöl- inn. Hinn vöðvastælti og sterki Kratos þarf að þessu sinni að ferðast á áður óþekktar slóðir þar sem fjölmargar óvæntar uppákomur bíða hans og fær um leið annað tækifæri til að standa sig sem faðir. Í leiknum God of War fylgjumst við með Kratos og syni hans Atreus þar sem þeir fara um og kanna villilendur norrænnar goðafræði og ganga frá flestum sem á vegi þeirra verða. Tegund: Hasar leikur Kemur út á: PS4 PEGI aldurstakmark: 18+ Útgáfudagur: 20. apríl Framleiðandi: Sony Interactive Entert. Útgefandi: Sena Leikurinn inniheldur: Nýtt upphaf: Eftir að hafa sigrað guðina á Ólympusfjalli fer Kratos á fund við guði norr- ænnar goðafræði og þeirra skrímsla og óvina sem þar eru á meðal. l Ný tækifæri: Kratos fær annað tækifæri til að sanna sig sem faðir, en í leiknum er sonur hans Atreus með honum í för. l Nýtt bardagakerfi: Í leiknum komast leik- menn nær hasarnum en áður og hafa meiri möguleika á að berja á óvinunum. Auk þess verður Kratos með ný og öflug vopn að velja úr og meiri hæfileika til að láta til sín taka. l Myndir mánaðarins 33