Roman J . Israel , Esq . Réttlætið er ekki ókeypis
Golden Exits Þegar fjaðrirnar verða að hænum
Roman J . Israel , Esq . – Golden Exits
Roman J . Israel , Esq . Réttlætið er ekki ókeypis
Roman J . Israel er lögfræðingur á sextugsaldri sem segja má að hafi fórnað öllu fyrir starf sitt og þá hugsjón sína að bæta réttarkerfið með nýjum lögum sem hann hefur skrifað sjálfur . En hver hefur áhuga á að hlusta á hann ?
Hér er á ferðinni afar góð saga sem hreyfir verulega við áhorfendum enda er Roman J . Israel enginn venjulegur maður sem leggur árar í bát þótt á móti blási . Hann verður hins vegar fyrir því áfalli að missa vinnuna þegar eigandi lögfræðistofunnar sem hann vinnur hjá fær hjartaáfall . Það sem Roman tekur til bragðs til að bjarga sínum málum kemur verulega á óvart , svo og afleiðingarnar ...
Punktar ............................................................................................ HHHH - Guardian HHH1 / 2 - Washington Post HHH1 / 2 - Entert . Weekly HHH1 / 2 - Rolling Stone HHH1 / 2 - Los Angeles Times HHH - Empire l Roman J . Israel , Esq . er önnur mynd Dans Gilroy sem leikstjóra en sú fyrri var hin frábæra mynd Nightcrawler sem aflaði honum m . a . tilnefninga til bæði Golden Globe- og Óskarsverðlauna fyrir handritið .
VOD
122 mín
Aðalhl .: Denzel Washington , Colin Farrell , Carmen Ejogo og Amanda Warren Leikstjórn : Dan Gilroy Útgefandi : Sena
Glæpadrama
19 . apríl l Í myndinni er Roman J . Israel með skarð milli framtannanna . Í raun og veru er Denzel með svona skarð en hann lét hylja það á sínum yngri árum . Fyrir gerð myndarinnar lét hann því einfaldlega fjarlægja þá yfirhalningu og birtist nú í fyrsta sinn í bíómynd með sitt upprunalega tannskarð !
Denzel Washington er að venju frábær í hlutverki sínu enda var hann tilnefndur til bæði Golden Globe- og Óskarsverðlauna fyrir það .
Golden Exits Þegar fjaðrirnar verða að hænum
Naomi er ung áströlsk kona sem komin er til New York til að vinna tímabundið fyrir bókasafnsfræðing sem tekið hefur að sér að koma skikki á ótal skjöl úr dánarbúi tengdaföður síns . En Naomi á eftir að gera miklu meira !
Golden Exits er eftir Alex Ross Perry sem gerði m . a . verðlaunamyndirnar Listen Up Philip og Queen of Earth og er af mörgum talinn einn af bestu sjálfstæðu leikstjórum Bandaríkjanna . Myndir hans ganga þvert á allar hefðir í sagnaflutningi því hann leggur fyrst og fremst áherslu á persónusköpun og lætur þessum persónum það eftir að skapa söguna með orðum sínum og athöfnum . Þetta þykir honum hafa tekist að gera alveg frábærlega í þessari mynd í samvinnu við einvalalið leikara sem þykja hver og einn fara á kostum í hlutverkum sínum ...
Punktar ............................................................................................ HHHHH - Village Voice HHHHH - Slant Magaz . HHHH1 / 2 - L . A . Times HHHH1 / 2 - N . Y . Times HHHH1 / 2 - Hollyw . Reporter HHHH - Variety l Golden Exits var tilnefnd til dómnefndarverðlaunanna á Sundance-kvikmyndahátíðinni í flokki dramamynda
l Fyrir utan þau fjögur sem tilgreind eru í kreditlistanum hér til vinstri leika þau Jason Schwartzman , Lily Rabe og Analeigh Tipton veigamikil hlutverk í myndinni .
Aðalhlutv .: Emily Browning , Adam Horovitz , Mary-Louise Parker og Chloë Sevigny Leikstj .: Alex Perry Útg .: Sena
Drama
22 Myndir mánaðarins
VOD
94 mín
19 . apríl l Myndin var tekin upp í svo að segja réttri tímaröð á fimmtán dögum í Brooklyn þar sem leikstjórinn býr ásamt nokkrum af aðalleikurunum . Chloë Sevigny grínaðist með það í viðtölum að þetta hefði verið í fyrsta sinn í mörg ár sem hún gat gengið í vinnuna .
Emily Browning leikur Naomi sem ruggar bátnum í heimsókn sinni .