Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Page 12
All the Money in the World
Peningana eða lífið
All the Money in the World er nýjasta mynd Ridleys Scott og
fjallar um þann fræga atburð í júlí árið 1973 þegar alnafna og
sonarsyni ríkasta manns heims á þeim tíma, John Paul Getty
III, var rænt í Róm og afi hans neitaði að greiða lausnargjaldið.
Ránið á hinum 16 ára gamla John Paul Getty III vakti heimsathygli á
sínum tíma en eftir að lausnargjaldskrafa upp á 17 milljónir dollara
barst fjölskyldu hans komst sá kvittur á kreik að ungi maðurinn
hefði sjálfur sett mannránið á svið til að kúga fé út úr hinum forríka
afa sínum. Sá harðneitaði hins vegar að borga, jafnvel eftir að ljóst
var orðið að John var í raun í haldi Ndrangheta-glæpasamtakanna
sem þá voru alræmdustu og voldugustu glæpasamtök Ítalíu fyrir
utan Sikileyjar-mafíuna. Við tók margra mánaða árangurslaus bar-
átta móður Johns við að frelsa hann. Í nóvember sama ár skáru
mannræningjarnir af honum annað eyrað og sendu það í pósti til
fjölmiðils ásamt orðsendingu um að þeir myndu þaðan í frá, á tíu
daga fresti, skera af honum fleiri líkamshluta uns lausnargjaldið
bærist eða hann dæi af sárum sínum.
Óhætt er að segja að allur heimurinn hafi síðan fylgst með fram-
vindunni næstu vikur sem varð vægast sagt æsispennandi en af
tillitssemi við þá sem þekkja ekki söguna og vilja upplifa spennuna
þegar myndin kemur út þá segjum við ekki meira um hana hér.
All the Money in the World
Sannsögulegt
DVD VOD
132
mín
Aðalhlutverk: Mark Wahlberg, Michelle Williams, Christopher
Plummer, Charlie Plummer, Romain Duris, Charlie Shotwell, Timothy
Hutton, Andrew Buchan og Giuseppe Bonifati Leikstjórn: Ridley
Scott Útgefandi: Myndform
5. apríl
Michelle Williams leikur móður Johns Paul Getty III, Gail Harris, og Mark
Wahlberg leikur Fletcher Chase sem gætti hagsmuna hins forríka Johns
Paul Getty en snerist síðan á sveif með Gail eftir því sem tíminn leið.
Punktar ....................................................
HHHHH - S. F. Chronicle HHHH 1/2 - Hollywood Reporter
HHHH 1/2 - N.Y. Times HHHH 1/2 - Chicago Sun-Times
HHHH 1/2 - N.Y. Post HHHH - TheWrap HHHH - E. Weekly
HHHH - Empire HHHH - Total Film HHHH - L.A. Times
HHHH - Telegraph HHHH - Guardian HHHH - Time Out
All the Money in the World er byggð á bók eftir
John Pearson sem kom út árið 1995 og heitir
Painfully Rich: The Outrageous Fortunes and
Misfortunes of the Heirs of J. Paul Getty.
l
Myndin var tilnefnd til þrennra Golden Globe-
verðlauna, fyrir bestu leikstjórn (Ridley Scott),
fyrir besta leik í aðalhlutverki kvenna (Michelle
Williams) og fyrir besta leik í aukahlutverki karla
(Christopher Plummer) en Christopher Plumm-
er var einnig tilnefndur fyrir hlutverkið til BAFTA-
og Óskarsverðlauna enda frábær sem hinn aldni John Paul Getty.
l
Christopher Plummer leikur auðjöfurinn John Paul Getty sem
neitaði staðfastlega að greiða lausnargjaldið fyrir sonarson sinn.
Veistu svarið?
Sá sem leikur John Paul Getty III, Charlie Plummer
(ekkert skyldur Christopher Plummer), vakti fyrst
verulega athygli í þekktum sjónvarpsþáttum þar
sem hann lék m.a. á móti Steve Buscemi og Kelly
Macdonald. Hvaða þáttum?
l
Boardwalk Empire.
12
Myndir mánaðarins
Christopher Plummer er nánast á sama aldri og John Paul Getty
var þegar atburðirnir í myndinni gerast, þ.e. rúmlega áttræður, en
John Paul lést skömmu síðar, þ.e. 6. júní 1976, 83 ára að aldri.