Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Página 10
Jumanji: Welcome to the Jungle
Lifðu þig inn í leikinn
Þegar þau Spencer, Bethany, Fridge og Martha eru látin sitja
eftir í skólanum rekast þau á gamla leikjatölvu í kjallaranum
og leik sem þau hafa aldrei heyrt minnst á áður, Jumanji. Þau
ákveða að prófa að spila – og sogast bókstaflega inn í leikinn.
Grín- og ævintýramyndin Jumanji: Welcome to the Jungle er lauflétt
og fyndin skemmtun og kjörin afþreying fyrir þá sem vilja sjá hress-
andi farsa. Þetta er sjálfstætt framhald myndarinnar Jumanji frá
árinu 1995 sem var aftur byggð á samnefndri bók rithöfundarins
Chris Van Allsburg. Í henni var Jumanji borðspil en hefur hér þróast
yfir í að vera tölvuleikur með þá stórfurðulegu hliðarverkun að um
leið og spilendur byrja að spila hverfa þeir bókstaflega inn í tölv-
una og leikinn og breytast í karakterana sem þeir spila með.
Eftir að þau Spencer, Bethany, Fridge og Martha átta sig á hvað
hefur gerst og komast yfir mesta áfallið og undrunina yfir því að
vera komin inn í leikinn uppgötva þau að eina leiðin fyrir þau að
snúa aftur til raunveruleikans er að sigrast á andstæðingum sínum
í leiknum og forðast að verða drepin af einhverju af villtu dýrunum
sem eru úti um allt í hinni risastóru og ævintýralegu opnu Jumanji-
veröld – áður en þau klára lífin þrjú sem þau hafa úr að spila!
Jumanji: Welcome to the Jungle
Gamanmynd / Ævintýri
Nick Jonas leikur hinn dularfulla bjargvætt Alex, en í aðalhlutverkunum
fjórum eru Dwayne Johnson, Karen Gillan, Jack Black og Kevin Hart.
118
DVD VOD
mín
Aðalhlutverk: Dwayne Johnson, Jack Black, Kevin Hart, Karen
Gillan, Bobby Cannavale, Alex Wolff, Tim Matheson og Nick Jonas
Leikstjórn: Jake Kasdan Útgefandi: Sena
Punktar ....................................................
HHHH 1/2 - Chicago Sun-Times HHHH - Screen Intern.
HHH 1/2 - Washington Post HHH 1/2 - RogerEbert.com
HHH 1/2 - H.Reporter HHH 1/2 - Time HHH 1/2 - TheWrap
5. apríl
Eins og kemur fram hér fyrir ofan er þessi mynd sjálfstætt fram-
hald af Jumanji frá árinu 1995 en í henni fór Robin Williams heitinn
með stærsta hlutverkið ásamt þeim Kirsten Dunst og Jonathan
Hyde. Í henni hafði karakter Robins, Alan Parrish, fest inni í leikn-
um og í nýju myndinni má sjá skýrar vísbendingar um veru hans í
honum, Robin til heiðurs og til minningar um þann frábæra leikara.
l
Leikstjóri myndarinnar er Jake Kasdan sem sló í gegn ungur að
árum árið 1998 með myndinni Zero Effect og hefur síðan m.a. gert
myndirnar Orange County, Bad Teacher og núna síðast Sex Tape.
l
Sá hluti myndarinnar sem gerist í raunheimum gerist í sama bæ
og fyrri myndin, þ.e. í Bratford í New Hampshire.
l
Fjórmenningarnir lenda í ýmsum vandræðum í Jumanji-leiknum.
Veistu svarið?
Þetta er í annað sinn á tiltölulega skömmum tíma
sem þeir Dwayne Johnson og Kevin Hart leika sam-
an en það gerðu þeir einnig í gamanmynd sem
var frumsýnd í júní 2016 og var leikstýrt af Rawson
Marshall Thurber. Hvaða mynd var það?
Central Intelligence.
10
Myndir mánaðarins