Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 Bíóhluti | Page 6
Væntanleg í maí – Deadpool 2
Það er heldur betur farið að styttast í mynd sem margir hafa beðið
spenntir eftir, Deadpool 2, en hún er eins og allir vita framhald
sögunnar um málaliðann Wade Watts sem öðlaðist ofurhæfileika
til að gróa sára sinna eftir að hafa gengist undir nýstárlega tilraun
til að lækna krabbamein sem hefði annars dregið hann til dauða.
Tilrauninni fylgdi hins vegar sú hliðarverkun að húð Wades af-
myndaðist, ekki síst í andliti, og það var einmitt út af því sem hann
ákvað að grímuklæðast og leita uppi manninn sem bar ábyrgðina
á því að hann varð eins og hann er. Sá er ekki enn fundinn.
Síðan við hittum Wade síðast hefur hann
dundað sér við ýmislegt annað en að lemja
á illgjörnu fólki, eins og t.d. listmálun og
eldamennsku. Þau hobbý verða samt að
fara á hilluna þegar einn af erkióvinum
hans úr upprunalegu teiknimyndablöð-
unum, hinn ógnvekjandi Cable, fer að
gera sig breiðan, ekki að ástæðulausu.
James Brolin leikur Nathan Summers, eða Cable eins og hann
er oftar nefndur, en hann er ekkert lamb að leika sér við eins
og áhorfendur eiga eftir að sjá. Cable leggur mikla áherslu á
að ekki sé sagt frá úrslitum viðureignar hans og Deadpool.
6
Myndin verður frumsýnd 18. maí en það
er stranglega bannað að segja orð um
söguþráðinn fyrr en í næsta blaði. Þeim
sem eru að farast úr spenningi er bent á að kíkja á glænýja stiklu
úr henni sem upplýsir ýmislegt en ekkert of mikið.
Deadpool er liðtækur málari eins og sjá má á þessari mynd. Það tók ítalska listamanninn Michelangelo fjögur ár að mála
freskurnar í loft sistínsku kapellunnar í Róm, þ. á m. myndina
Sköpun Adams sem þeir Deadpool og Cable herma hér eftir.
Þessi ungi maður, sem Julian Dennison leikur, kemur mikið við
sögu í myndinni, meira en hann hélt sjálfur, hvað þá Deadpool. Hin geysiöfluga Domino blandar sér í slaginn en hún
er leikin af þýsk-bandarísku leikkonunni Zazie Beetz.
Myndir mánaðarins