Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 Bíóhluti | Page 4
Myndir mánaðarins
Gleðilega páska
Apríl er mættur í öllu sínu veldi og ber með sér páskahátíðina og
allt sem henni fylgir, þar á meðal páskafrí fyrir marga sem við
mælum að sjálfsögðu með að allir noti til að sjá góðar myndir. Svo
óvenjulega vill til að páskadagurinn lendir í þetta sinn á gabb-
deginum mikla, 1. apríl, en það hefur ekki gerst síðan 1956 og á
vafalaust eftir að kveikja í mörgum húmoristanum.
Á bíódagskrá mánaðarins eru tíu myndir að þessu sinni sem koma
úr öllum flokkum kvikmyndalitrófsins eins og sjá má þegar listinn
hér fyrir neðan er skoðaður og blaðinu flett áfram. Sjáumst í bíó!
Bíódagskráin í apríl:
6. apríl
6. apríl
6. apríl
13. apríl
13. apríl
18. apríl
18. apríl
18. apríl
27. apríl
27. apríl
A Quiet Place
Blockers
Death of Stalin
Rampage
The Strangers: Prey at Night
7 Days in Entebbe
Önd, önd, gæs
Every Day
Super Troopers 2
Avengers: Infinity War
Bls. 16
Bls. 18
Bls. 20
Bls. 22
Bls. 24
Bls. 25
Bls. 26
Bls. 28
Bls. 29
Bls. 30
Ps. Kíkið svo endilega á DVD- og VOD-útgáfuna sem kynnt er
hinum megin í blaðinu ásamt tveimur nýjum tölvuleikjum.
Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í
eitthvert kvikmyndahúsanna?
Finndu þá páskaungann og taktu þátt í leiknum!
Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna pínulítinn
páskaunga sem villst hefur inn á eina síðuna hérna
bíómegin í blaðinu og lítur út eins og þessi:
Ef þú finnur ungann og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á
facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með
skilaboðum, þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem unginn er. Ekki
gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu.
Frestur til þátttöku er til og með 21. apríl. Valið verður af handahófi
úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn vinningshafa
síðan birt á Facebook-síðunni okkar og í næsta tölublaði sem kemur
út í lok apríl.
Vinningshafar í síðasta leik, finndu sólina:
Ásta Kristín Jónatansdóttir, Miðvangi 106, 220 Hafnarfirði
Kristinn Þórisson, Hjallalundi 17i, 600 Akureyri
Anna S. Gunnarsdóttir, Marargrund 11, 210 Garðabæ
Guðni Sigurðsson, Sóleyjagötu 12, 300 Akranesi
Karen Bergljót Knútsdóttir, Ljósheimum 6 íb. 802, 104 Reykjavík
Takk fyrir þátttökuna!
MYNDIR MÁNAÐARINS
291. tbl. apríl 2018
Útgefandi: Myndir mán. ehf., Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 534-0417
Heimasíða: www.myndirmanadarins.is
Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / [email protected]
Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson
Próförk: Veturliði Óskarsson
Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja
Upplag: 21.000 eintök
4
Myndir mánaðarins
FRUMSÝND 18. APRÍL
MEÐ ÍSLENSKU TALI