Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 Bíóhluti | Page 29
Super Troopers 2
Það var kominn tími til!
Fimmmenningarnir í Broken Lizard-gríngenginu mæta aftur í
bíó 27. apríl sem löggurnar Thorny, Foster, Mac, Rabbit og
Farva sem gerðu það gott í hinni farsakenndu og fyndnu Super
Troopers árið 2001 og hafa nú fengið nýtt og krefjandi verkefni.
Í þetta sinn kemur í ljós að landmælingar á spildu einni sunnarlega
í Québec í Kanada hafa verið rangar því nýjar mælingar sýna að hún
tilheyrir að öllum líkindum Vermont-ríki Bandaríkjanna. Á meðan
endanlega er skorið úr um eignarhaldið fyrir dómstólum er svæðið
lýst hlutlaust og felst verkefni okkar manna í því að koma upp nýrri
eftirlitsstöð á því. Þessu kunna íbúar svæðisins frekar illa og þá ekki
síst hin kanadíska sveit landamæravarða sem lítur á allt bandarískt
sem óvelkomna aðskotahluti. Það má því segja að andrúmsloftið á
svæðinu verði í framhaldinu lævi blandið og óvenjulega eldfimt ...
Löggurnar kostulegu, Farva, Mac, Thorny, Rabbit og Foster eru sem fyrr
leiknar af þeim Kevin Heffernan, Steve Lemme, Jay Chandrasekhar, Erik
Stolhanske og Paul Soter en þeir skipa einnig gríngengið Broken Lizard.
Super Troopers 2
Punktar ....................................................
Gamanmynd
Eftir að fyrri Super Troopers-myndin sló í gegn árið 2001 gaf Broken
Lizard-gríngengið, þ.e. þeir sem léku lögreglumennina fimm, það
út að gerð yrði mynd númer tvö. Fyrst var talað um að hún yrði ekki
framhald heldur forsaga þar sem feður fimmmenninganna y rðu
aðalpersónurnar en smám saman breyttist sú hugmynd yfir í þá
sem hér er loksins orðin að veruleika, sautján árum síðar.
l
100
mín
Aðalhlutverk: Jay Chandrasekhar, Kevin Heffernan, Steve Lemme,
Paul Soter, Erik Stolhanske, Rob Lowe, Lynda Carter og Brian Cox
Leikstjórn: Jay Chandrasekhar Bíó: Smárabíó og Háskólabíó
Frumsýnd 27. apríl
Til að fjármagna gerð myndarinnar fóru fimmmenningarnir í sam-
starf við fjármögnunarvefinn Indiegogo í mars 2015 og var markið
sett á að safna tveimur milljónum dollara. Það náðist með glans á
aðeins 26 klukkustundum og þegar yfir lauk, mánuði síðar, var
upphæðin komin í 4,4 milljónir dollara. Um leið varð þetta sjöunda
best heppnaða fjármögnun Indiegogo frá upphafi.
l
Fyrri Super Troopers-myndin á sér marga aðdáendur og við hvetj-
um bæði þá og alla aðra til að skoða sprenghlægilega „Red Band“-
stikluna úr nýju myndinni sem finna má m.a. á YouTube.com.
l
Veistu svarið?
Ríkisstjóri Vermont, Jessman, blandar sér að sjálf-
sögðu inn í málin eins og í fyrri myndinni og er eins og
þá leikin af Lyndu Carter. Lynda á langan leikferil að
baki en sló upprunalega í gegn í sjónvarpsþáttum
um eina af ofurhetjum DC-Comics. Hvaða þáttum?
Fyrir utan löggurnar fimm koma bæði gamlir kunningjar úr
fyrri myndinni og nýjar persónur við sögu, þar á meðal
bæjarstjórinn Guy Le Franc sem Rob Lowe leikur.
Wonder Woman.
Myndir mánaðarins
29