Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 Bíóhluti | Page 22
Rampage
Einhver verður að bjarga heiminum!
George er albínó-górilla í eigu dýrafræðingsins Davis Okoye
sem jafnframt er hans besti vinur enda hefur myndast á milli
þeirra einstakt vinasamband. En þegar George veikist af ein-
hverjum ókunnum sjúkdómi sem veldur ofsavexti og miklum
skapsveiflum byrja hlutirnir heldur betur að fara úr böndunum.
Rampage sækir efnivið sinn í samnefnda tölvuleikjaseríu þar sem
leikmenn stýrðu fólki sem hafði stökkbreyst í risadýr eins og gór-
illuna George, úlfinn Ralph og Lizzie, sem er nokkurs konar blanda
af risaeðlu og krókódíl, og mörg önnur, en þessi dýr þrömmuðu um
allar grundir og brutu og brömluðu allt sem á vegi þeirra varð í leit
að þeim sem báru ábyrgð á óförum þeirra. Myndin fylgir að vísu
ekki þeim söguþræði nema að hluta til því hér á Dwayne Johnson
sviðið í hlutverki Davis sem þarf að finna mótefni gegn ofsavexti
dýranna áður en þau leggja allt í rúst. Búist við hreinræktuðu
ævintýri og hasar þar sem húmorinn er aldrei langt undan!
Rampage
Ævintýri / Hasar / Húmor
Dwayne Johnson leikur dýrafræðinginn Davis Okoye sem tekist hefur
að mynda einstakt vinasamband við górilluna George og Naomie Harris
leikur genafræðinginn Kate Caldwell sem gengur í lið með honum.
107
mín
Aðalhlutverk: Dwayne Johnson, Jeffrey Dean Morgan, Naomie
Harris, Malin Akerman, Will Yun Lee og Jack Quaid Leikstjórn: Brad
Peyton Bíó: Sambíóin Álfabakka, Egilshöll, Kringlunni, Akureyri
og Keflavík, Laugarásbíó, Ísafjarðarbíó, Eyjabíó, Bíóhöllin Akranesi,
Króksbíó og Skjaldborgarbíó
Frumsýnd 13. apríl
Davis Okoye er vandi á höndum því um leið og hann þarf að berjast
við stökkbreytt risadýr þarf hann að vernda vin sinn, górilluna George.
Veistu svarið?
Rampage er þriðja myndin sem þeir Dwayne
Johnson og leikstjórinn Brad Peyton gera saman
en sú fyrsta var Journey 2: The Mysterious Island
sem var frumsýnd 2012. En hvað heitir önnur
mynd þeirra sem var frumsýnd sumarið 2015?
San Andreas
22
Myndir mánaðarins
Punktar ....................................................
Fyrsti Rampage-tölvuleikurinn kom út árið 1986 og fram til ársins
2006 voru fimm aðrir leikir gefnir út í seríunni, Rampage World
Tour, Rampage Universal Tour, Rampage Through Time, Rampage
Puzzle Attack og Rampage Total Destruction. Eins og þeir vita sem
spiluðu þessa leiki var górillan George og fleiri dýr sem leikmenn
spiluðu með í raun fólk sem hafði stökkbreyst af völdum tilrauna
eða vegna einhvers konar eiturs sem illmennin á Scumlabs-rann-
sóknarstofunni höfðu framleitt og byrlað þeim. Það má reikna með
að í myndinni sé að finna margar skemmtilegar tilvísanir í leikina.
l