Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 Bíóhluti | Page 12
Bíófréttir – Væntanlegt
Fyrsta stiklan úr Adrift
Fyrsta stiklan úr nýjustu mynd Baltasars Kormáks, Adrift, var
frumsýnd um miðjan mars og hefur vakið mikla athygli.
Myndin, sem byggð er á sannsögulegum atburðum, er með
þeim Shailene Woodley og Sam Claflin í hlutverkum Tamiar
Oldham og Richards Sharp sem í október árið 1983 tóku að sér
að sigla 44 feta skútu, Hazana, frá Tahiti-eyju í Pólýnesíu til
viðtakenda í San Diego, um 6.500 kílómetra leið yfir opið
Kyrrahafið. Þau gátu auðvitað ekki séð fyrir að á nítjánda degi
ferðarinnar myndu þau lenda í miðjum fellibylnum Raymond
sem í ofanálag varð öflugasti fellibylur ársins. Þeim Tami og
Richard tókst með herkjum að halda skútunni á réttum kili en
í baráttunni stórslasaðist Richard og öll stjórn- og siglingatæki
skútunnar eyðilögðust, svo og matarbirgðir. Það varð þeim
báðum því strax ljóst að þeirra beið ekkert nema dauðinn
nema þau fyndust fljótlega en á því voru hverfandi líkur. Adrift
verður frumsýnd í byrjun júní í kvikmyndahúsum heimsins.
Hver mun standa gegn Gellert?
Næsta kafli sögu J. K. Rowling um Newt Scamander og ævintýri
hans sem við kynntumst fyrst í Fantastic Beasts and Where to
Find Them er nú kominn vel á seinni helminginn í vinnslu en
hún á að vera tilbúin til frumsýningar um miðjan nóvember.
Eddie Redmayne leikur Newt að sjálfsögðu aftur og til baka úr
fyrri myndinni snúa einnig karakterar eins og þau Tina Gold-
stein, Queenie Goldstein og Jacob Kowalski sem eru leikin af
Katherine Waterston, Alison Sudol og Dan Fogler. Auk þess
blandast bróðir Newts, Thaddeus, inn í málin og Ólafur Darri
Ólafsson kemur við sögu í hlutverki karaktersins Skenders.
Í myndinni er sagt frá því þegar hinn vondi Gellert Grindelwald
sleppur úr haldi töfrayfirvalda í Bandaríkjunum og byrjar að
skipuleggja á ný yfirráð sín yfir galdraheimum. Við það verður
ekki unað og þegar Albus Dumbledore biður Newt um aðstoð
til að fanga Gellert aftur getur hann ekki vikið sér undan þótt
áhættan sé mikil. Það er Johnny Depp sem fer með hlutverk
Gellerts og Jude Law leikur Dumbledore og eru áhugasamir
hvattir til að skoða nýútkomna og stórskemmtilega stikluna.
Lífshætta framundan
Það er ekki hægt að segja annað en að þær Mila Kunis og Kate
McKinnon fari á kostum í fyrstu stiklu myndarinnar The Spy
Who Dumped Me sem var frumsýnd fyrir skömmu en myndin
kemur í bíó í ágúst ef áætlanir standast. Þetta er að sjálfsögðu
gamanmynd en hún segir frá tveimur vinkonum sem lenda í
kröppum dansi eftir að önnur þeirra, Audrey, hittir mann sem
reynist síðan vera njósnari sem margir hafa áhuga á að koma
fyrir kattarnef. Vegna kynna þeirra verður Audrey sjálf að
skotmarki morðingjanna svo og besta vinkona hennar, Morg-
an, sem dregst inn í málið. Með önnur helstu hlutverk fara þau
Justin Theroux, Gillian Anderson og enginn annar en okkar
maður, Ólafur Darri Ólafsson, en hann leikur ónafngreindan
mann sem óvíst er hvort standi með stúlkunum eða ekki.
12
Myndir mánaðarins
Fegursta kona heims
Gríndrottningin Amy Schumer mætir að öllum líkindum á hvíta
tjaldið í maí með nýjustu mynd sína, I Feel Pretty, en hún segir frá
Renee Barrett sem er hálf niðurlút og döpur yfir því að vera ekki
jafn flott í laginu og fyrirsætur á borð við Naomi Campell. Hún er
samt alltaf að reyna og dag einn þegar hún er á fullu í líkams-
ræktinni dettur hún á höfuðið og rotast. Þegar hún rankar við
sér kemur í ljós að eitthvað hefur farið úrskeiðis því hún sér nú
sjálfa sig allt í einu sem eina af fegurstu konum heims og byrjar
að haga sér samkvæmt því. Spurning hvort það virki til lengdar!