Matthías Ólafur og Bergur Páll unnu
verkefni um bókina Rökkurhæðir
Rökkurhæðir: Rústirnar
Þetta er okkar yfirlit um bókina Rökkurhæðir: Rústirnar. Bókin er eftir Birgittu Elínu
Hassell, hún var gefin út af Bókabeitunni í Reykjavík 2011.
Þessi bók er væg hryllingsbók, hún gerist á Ísland á stað sem kallast Rökkurhæðir.
Bókin fjallar um Önnu Þóru sem hittir aðra stelpu sem er nákvæmlega eins og hún, en
hún hugsar öðruvísi en hún. Hún vill taka yfir líf hennar og losar sig við nokkra
meðlimi sem henni líkar ekki vel við. Á meðan allt þetta er að gerast þá er Anna að
gleyma vinum sínum útaf því að hin stelpan er að gera allt fyrir hana. Síðan fattar
Anna það og reynir að vera meira með fjölskyldunni en mömmu hennar líkaði betur
við hina stelpuna. Síðan hin stelpan segir eitthvað við bestu vinkonu hennar, þá
uppgötvar Anna hvað hin er að gera. Hún segir bestu vinkonu sinni hvað er að gerast
og það setur vinkonu hennar í hættu. Eina leiðin til að stoppa hina stelpuna þarf hún
að giska nafnið hennar, hún fær eina tilraun í hverri viku. Síðan kemur síðasta vikan og
þá fer hún og vinkona hennar og reyna að taka málið í sínar hendur.
Við gefum bókinni 3.5/5