Hamar - basketball Hamar blað tilbúið 2019 | Page 13
Strákarnir í 7. og 8. flokki æfa saman og hafa verið mjög duglegir undanfarin tvö ár. Í 7. flokki spila
strákarnir undir merki Hamars á íslandsmótinu og hafa aðeins keppt á einu móti í vetur. Þeir stóðu
sig vel og unnu alla sína leik nema gegn Hetti en þeir urðu því miður að sleppa þeim leiknum þar
sem ekki var flogið þegar mótið fór fram og fengu strákarnir að kynnast því að eyða hálfum degi á
flugvelli í bið Strákarnir í 8. flokki spila í sameiginlegu liði Hamars/Hrunamanna og hafa staðið sig
ótrúleg vel. Eru búnir að spila átta leiki í vetur og hafa unnið alla sína leiki af öryggi. Það er því óhætt
að segja að framtíðinn sé björt hjá strákunum bæði í 7. og 8. flokki ef þeir halda áfram að æfa jafn
vel og síðastliðinn tvö ár.
Daði Steinn þjálfari 7.-8. flokks karla