Fréttabréf Guluhlíðar 10.-14. júlí | Page 2

Þá er sjöttu vikunni af sumarstarfinu lokið og erum við búin að hafa það gott í hérna í Guluhlíð.

Í vikunni hafa húsin farið í sundferðir, farið í IKEA og fengið ís, bæjarferðir í blíðunni, kíkt var á brúðubílinn, ásamt því að farnar voru fleiri ferðir.

Á föstudeginum voru grillaðar pylsur og góð stemning í öllum húsum. Bökuðu köku og héldum smá kveðjupartý fyrir Hönnu Lauru þar sem síðasti dagurinn hennar var í dag

Við minnum ykkur á að koma með hollt og gott nesti fyrir börnin.

Gott er að börnin séu með nóg af aukafötum og sundföt.