Afmælisblað VLFA - 90 ára | Page 6

Opið hús 14. október Í tilefni af 90 ára afmæli Verkalýðsfélags Akranes er bryddað upp á ýmsu til að brjóta upp hversdaginn. Það er full ástæða til að fagna enda innihalda þau 90 ár sem liðin eru frá stofnun félagsins ótal sigra þegar kemur að baráttu fyrir kaupi og kjörum verkafólks. 90 ár eru langur tími og félagið á sér merkilega sögu sem vert er að rifja upp. Þetta afmælisblað er einmitt einn liður í því að fagna þessum tímamótum í sögu félagsins. Á síðum þess er að finna ýmsa sögumola, bæði úr fundargerðabókum og gömlum dagblöðum en jafnframt er áhersla lögð á starf félagsins í nútímanum og þann fjölbreytileika sem þar ríkir. Af öðrum dagskrárliðum í tengslum við afmælið má helst nefna tvenna tónleika laugardaginn 11. október í Bíóhöllinni, annars vegar með strákunum í Pollapönki kl. 15:00 og hinsvegar tónleikar með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna kl. 20:30. Báðir tónleikarnir eru í boði Verkalýðsfélags Akraness og því er enginn aðgangseyrir, en sækja þarf miða á Helga Björns á skrifstofu félagsins á meðan birgðir endast. Verið velkomin á Sunnubraut 13 Á sjálfan afmælisdaginn, þriðjudaginn 14. október, verður opið hús á skrifstofu félagsins á milli kl. 14 og 16. Heitt verður á könnunni og boðið upp á léttar veitingar. Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að kíkja við og gleðjast með Verkalýðsfélagi Akraness á þessum tímamótum. Verkalýðsfélag Akraness 90 ára Hátíðardagskrá Laugardaginn 11. október: Kl. 15:00 Tónleikar með Pollapönk í Bíóhöllinni, Akranesi. Frítt fyrir öll börn á meðan húsrúm leyfir. Húsið opnar kl. 14:20. Kl. 20:30 Tónleikar með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna. Í Bíóhöllinni, Akranesi. Hver félagsmaður fær afhentan einn miða á skrifstofu félagsins, athugið að einungis eru 300 miðar í boði. Fyrstur kemur fyrstur fær. Þriðjudaginn 14. október: Kl. 14-16 6 Opið hús á Sunnubraut 13. Heitt kaffi á könnunni og meðlæti. Endilega láttu sjá þig!