Ný tegund á Íslandi – Bedlington terrier
MultiCh Velvety Waltzing Matilda eig. Silvia Proietti & Gabriele Ilarioni
Höfundur: Monika Emilsdóttir
Bedlington terrier er millistór
hundategund sem á uppruna
sinn að rekja til námubæjarins
Bedlington á Englandi. Þar
voru þeir notaðir til margs
konar meindýraveiða, m.a.
rottuveiða, þá aðallega af
námumönnum og sígaunum.
Til eru skráningar Bedlington
terriers allt aftur til ársins
1782. Tegundin er þekkt fyrir
sérstakt útlit, en þeir minna
einna helst á lamb, vegna
ljósa, hrokkna og silkimjúka
feldsins. Talið er að Bedlington
sé náskyldur Dandie Dinmont
Terrier, Soft Coated Wheaten
Terrier og Whippet, en
Bedlington er með sams
konar líkamsbyggingu og
Whippet, kúpt bak og kröftuga
afturfætur sem gerir þeim
kleyft að hlaupa á ógnarhraða.
Skapgerð Bedlington terrier
er afskaplega þægileg. Þeir
eru greindir og það er auðvelt
að kenna þeim. Þeir eru
fullir sjálfstrausts og hræðast
fátt, það er mikill leikur í
þeim og þeir una sér mjög
vel með börnum. Þeir verða
þó helst að hafa alist upp
með börnum. Bedlington er
nægjusamur og er þekktur
fyrir að líða vel hvar sem hann
kemur. Hann verður yfirleitt
ekki háður einni manneskju og
á það til að sækja sér strokur
og kelerí frá bláókunnugu
fólki. Þeir eru þekktir fyrir
að vera mjög félagslyndir og
treysta yfirleitt öllum.
Bedlington er með sterkt
veiðieðli og geta verið
hættulegir bæði köttum
og nagdýrum. Þeir hlaupa
hratt svo það er öruggast að
halda þeim í taumi sé þeim
ekki 100% treystandi til að
hlýða stöðvunarskipun. Ef
Bedlington á að búa með
slíkum dýrum þá verður hann
að vera alinn upp með þeim
og það er ekki einu sinni
öryggi fyrir því að hann geti
staðist veiðieðlið. Það er þó
einstaklingsbundið.
Bedlington er mjög góður
með öðrum hundum en komi
til uppþota þá er Bedlington
mikill terrier og gefur sig ekki
svo auðveldlega. Hins vegar er
hann mjög seinn til vandræða.
Bedlington er 38 – 44 cm
á hæð og 7 – 11 kg. Ekki er
mikill munur á hundum og
tíkum. Þeir geta verið “bláir,
liver eða sand”- litaðir. Allir
með eða án “tan” merkinga.
Því dekkri því betri – er
stundum sagt, en hvolparnir
fæðast allir mjög dökkir,
nánast svartir og síðan fölnar
liturinn nánast í alveg hvítan
á öllum litbrigðum. Þeir fara
ekki úr hárum. Feldurinn vex
stöðugt og það þarf að klippa
hann til að halda honum
fínum. Sé það ekki gert
þæfist feldurinn eins og ull
og veldur hundinum miklum
óþægindum. Það krefst
mikillar nákvæmnisvinnu
að klippa þá og yfirleitt þarf
að njóta aðstoðar sérhæfðs
hundasnyrtis. Feldurinn er án
undirfelds og þeir framleiða
litla sem enga húðfitu, sem
veldur því að þeir þola illa
að blotna og verða fljótt
ískaldir. Hins vegar hafa þeir
litla sem enga hundalykt. Það
þarf að þjálfa þá hægt og
rólega í feldhirðu eins, og alla
hárprúða hunda, til að koma í
veg fyrir slæma upplifun eftir
margra tíma sársaukafulla
burstun og klippingu. Best
er að byrja smátt og smátt í
stuttan tíma og búa þannig til
gæðastund milli eiganda og
hunds.
Í dag er Bedlington sárasjaldan
notaður sem veiðihundur.
Hann hefur fengið hlutverk
fjölskylduhunds og stendur sig
afskaplega vel í því hlutverki.
Hann hefur mikið að gefa,
hann er mannelskur og sækir
mikið í nánd og snertingu,
hvort sem er hjá fjölskyldunni
eða hjá ókunnugum. Börn
elska Bedlington því hann er
leikviljugur sé komið fram
við hann af vinsemd og
virðingu. Hann hentar vel á
nútímaheimili því feldurinn
vex stöðugt og því fara þeir
ekki úr hárum, og ekki er verra
að hann hefur takmarkaða
hundalykt. Bedlington terrier
er nú samt upprunalega
veiðihundur og er vaxinn
mjög kröftuglega og þarf að
fá góða hreyfingu. Allra helst
þarf hann að fá að hlaupa laus
endrum og sinnum. Þótt hann
sé nálægt því að vera hinn
fullkomni stórborgarhundur,
þá má alls ekki gleyma því að
hann verður líka að fá að vera
frjáls og njóta sín.
MultiCh WW Velvety Angel Eyes eig. Lise-Lotte Nilsson & Anki Thörnestad
Sámur 2. tbl. 44. árg. júní 2016 · 37