2.tbl. 44.árg. júní 2016 | Page 22

Heimsókn í Hundahreysti

Hundafóður er stór hluti af hundahaldi . Á misjöfnu þrífast börnin best á líklega við í þessu samhengi og til eru mjög margar tegundir af hundafóðri og nóg að velja úr . Sámur kíkti í heimsókn til fyrirtækis sem framleiðir svokallað hráfóður eða ferskfóður fyrir Íslandsmarkað og er hið eina sinna tegundar hér á landi . Hvernig ætli að sé að vera hráfóðurframleiðandi á Íslandi ?
Höfundur og ljósmyndari : Anja Björg Kristinsdóttir
Daníel tók á móti okkur sem er annar eigenda Hundahreystis . Fyrirtækið var stofnað árið 2008 af Kristínu Þorvaldsdóttur og Daníel Elíassyni eftir að þau höfðu verið með hugmyndina “ í maganum ” í tæplega tvö ár . En hvað var til þess að þið fóruð út í þessa starfsemi ?
“ Við komumst í kynni við ferskfóðrið þegar við bjuggum í Svíþjóð og fannst tilvalið að hægt væri að kaupa tilbúið heilfóður handa hundum sem inniheldur hrátt kjöt . Þegar heim var komið sáum við að hvergi var hægt að kaupa tilbúið ferskfóður . Við höfðum samband við Nordic hundfoder í Svíþjóð og fengum að heimsækja verksmiðju þeirra . Fljótlega var ákveðið að fara í framleiðslu á fóðri þeirra hér á landi með franchise-samning , enda er bannað að flytja það til landsins . Nordic í Svíþjóð hefur framleitt ferskfóður fyrir hunda síðan 1980 og mjög góð reynsla er komin á notkun fóðursins þar .”
Ísland er lítið land og því fylgja kostir og gallar að vera fóðurframleiðandi hér á landi , segir Daníel . “ Lang skemmtilegast er að við erum farin að þekkja afskaplega marga viðskiptavini persónulega , bæði eigendur og hunda . Að hafa góða tengingu við þá er mjög mikilvægt fyrir framleiðslufyrirtæki til að geta brugðist við ábendingum og það er líka mest gefandi parturinn af starfinu . Smæðin á landinu gerir það erfitt að vera með framleiðslu í stóru magni og stundum erum við að glíma við hráefnisskort , sem er mjög hvimleitt fyrir okkar viðskiptavini .”
Framleidd eru um 5000 kg af ferskfóðri á mánuði . Áætlað er að um 500-600 hundar séu á fæðinu . Þó er nokkuð erfitt að meta þar sem sumir eru að fá ferskfóðrið tímabundið eða með öðru fóðri og svo eru til hundaeigendur með marga hunda , en ekki alla á fóðrinu frá okkur . Framleiðslan er háð starfsleyfum frá bæði Heilbrigðiseftirlitinu og Matvælastofnun og báðar stofnanir koma reglulega í heimsókn til að gera úttektir .
Hefðbundin vinnuvika hjá fyrirtækinu er þannig að á mánudögum er undirbúningur og vörumóttaka . Hráefni kemur frá flestum sláturhúsum á landinu . en bæði er notað kinda og nautakjöt í fóðrið . Að sögn Daníels er þetta í raun sáralítil vinnsla þar sem fóðrið eins hreint og hægt er . Starfsmenn sem eru 3 talsins , hakka kjötið , blanda saman fóðrinu samkvæmt ákveðinni formúlu , pakka og setja það svo strax í frysti .
Á þriðjudögum er sett í þurrkun grísaeyru , -trýni og -halar ásamt þurrkuðum nautatyppum .
22 · Sámur 2 . tbl . 44 . árg . júní 2016