Frá ritstjóra
Stjórn HRFÍ
Formaður:
Herdís Hallmarsdóttir
Meðstjórnendur:
Auður Sif Valgeirsdóttir, aðalstjórn
Daníel Örn Hinriksson, aðalstjórn
Pétur Alan Guðmundsson, aðalstjórn
Þorsteinn Thorsteinson, aðalstjórn
Brynja Tomer, varastjórn
Guðbjörg Guðmundsdóttir, varastjórn
Ábyrgðarmenn:
Fríður Esther Pétursdóttir
Herdís Hallmarsdóttir
Ritstjóri:
Klara Símonardóttir
Auglýsingar:
[email protected]
Ritnefnd:
Anja Björg Kristinsdóttir
Guðrún Margrét Baldursdóttir
Heiðrún Finnsdóttir
Heiðrún Villa
Inga Björk Gunnarsdóttir
Jóhanna Reykjalín
Klara Símonardóttir
Þórunn Inga Gísladóttir
Sigríður Jónsdóttir
Svava Björk Ásgeirsdóttir
Þorsteinn Thorsteinson
Prófarkalestur:
Klara Símonardóttir
Umbrot:
Linda Björk Jónsdóttir
Prentun:
Prentmet
Sámur kemur út tvisvar sinnum á ári í 2000
eintaka upplagi. Blaðið er fyrst og fremst
sent skuldlausum félögum HRFÍ. Auk þess
fá erlend hundaræktarfélög, fjölmiðlar,
sjúkrastofnanir og bókasöfn blaðið sent
til sín. Tímaritið er einnig selt í lausasölu.
Aðsent efni í blaðið er á ábyrgð höfundar
og þarf ekki að lýsa skoðun ritnefndar eða
stefnu félagsins. Eftirprentun er bönnuð
nema að fengnu leyfi höfundar.
Útgefandi:
Hundaræktarfélag Íslands
Síðumúla 15
108 Reykjavík
Sími: 588-5255
Vefsíða: www.hrfi .is
Netfang: hrfi@hrfi .is
ISSN 1027-4235
Sámur 2. tbl 44. árg 2016
Nú er sumarið komið og allt sem því tilheyrir,
ferðalög, útivera, grill, stöku sólardagar og einhverjir
rigningardagar. Sumir ferðast innanlands og aðrir fara
utan en alltaf þurfum við að gera ráð fyrir hundunum
okkar og ekki seinna vænna ef það ef ráðstafanir hafa
ekki verið gerðar. Á hundurinn að fara í pössun og þá
hvert eða kemur hann með og er það leyft þar sem við
ætlum að vera.
Að ýmsu þarf að huga varðandi ferðalög með hunda,
þeir eru í flestum tilvikum bannaðir í sumarbústöðum
stéttarfélaga sem og á mörgum hótelum og gististöðum.
Oft eru þeir þó leyfðir á tjaldsvæðum ef þeir eru til
friðs og í taumi. Gæta þarf að fleiru en gistingu ef
ferðast á með hunda og það er þá ferðamátinn og lengd
ferðalagsins. Hundar þola ekki marga klukkutíma í einu í
bílnum og verður því að stoppa reglulega og leyfa þeim
að teygja úr sér og fá sér vatn. Einnig verður að gæta
þess sérstaklega vel að ekki er hægt að skilja dýr ein eftir
í bíl lengur en örstutta stund hvort sem er á ferðalögum
eða innanbæjar þar sem ekki þarf mikinn hita til þess að
þau ofhitni en það getur reynst lífshættulegt.
Síðan má ekki gleyma því að það verður að gera ráð
fyrir plássi í bílnum fyrir hundana í sínu búri og einnig
fyrir þeirra fylgihlutum, fóðri og þess háttar. Ekki
gengur að skella hundabúrinu í skottið og hlaða svo
öllum farangrinum þar ofan á svo að dýrið verður
hálf súrefnislaust á botninum. Það þýðir svo heldur
ekki að hafa dýrið laust í bílnum þar sem það þykir
ekki heppilegt að vera undir stýri á 90 km hraða og fá
skyndilega hund í fangið. Ekki má svo gleyma bílveikinni
sem hrjáir sum dýr og er heppilegra að þau séu vön
bílnum áður en farið er af stað í langferð. Mjög sniðugt
er að hafa hundinn vel merktan í ferðalaginu ef hann
skyldi týnast svo hann skili sér sem fyrst aftur til eigenda.
En nú vil ég óska öllum gleðilegs sumars og vona ég að
þið og dýrin ykkar eigið góðan samverutíma í sumar og
gleymið ekki að taka Sáminn með í fríið.
Klara Símonardóttir
Ritstjóri og ritnefnd Sáms þakka af alhug öllum þeim
aðilum sem komu að útgáfu blaðsins fyrir aðstoðina.
Ef ekki væri fyrir gífurlegan fjölda sjálfboðaliða væri
tæplega hægt að halda úti jafn öflugu félagsblaði.
Leifturs Harpa
Eigandi: Vigdís Tryggvadóttir.
Ljósmyndari: Gunnur Sif Sigurgeirsdóttir.
Efnisyfirlit
Sigríður Pétursdóttir . . . . . . . . . . . 4
Tegundakynning - Langhundur. . . . 6
Fyrstu vikur hvolpsins. . . . . . . . . . 10
Hvað er kornlaust gæludýrafóður. . 16
Langar þig að taka meiri þátt í starfi
félagsins? . . . . . . . . . . . . . . . . . 19
Ræktandinn, María Björg Tamimi,
Svartwalds ræktun. . . . . . . . . . . . 24
Höfum þetta einfalt. . . . . . . . . . . 27
Heimatilbúin hundabæli . . . . . . . . 28
Erlendur ræktandi, Börje og Theres
Johansson, Allert’s ræktun . . . . . . 30
Forsíðumyndakeppni Sáms. . . . . . 32
Nýjar hundategundir á íslandi. . . . 34
Nýir meistarar. . . . . . . . . . . . . . . 38
Febrúar sýning HRFÍ. . . . . . . . . . . 40
Besti hundur sýningar . . . . . . . . . 46
Persónutöfrar eru málið. . . . . . . . 47
Stigahæstu ársins. . . . . . . . . . . . 48
Uppskeruhátíð HRFÍ . . . . . . .