standa mér afskaplega nærri
enda má líta á verndun og
varðveislu þjóðarhundsins
okkar sem kjarnann í starfi
Hundaræktarfélags Íslands.
og maður lærir alltaf eitthvað nýtt
á hverri sýningu.
Áhugi minn einskorðast ekki við
þær tvær ólíku tegundir sem ég
hef valið mér. Ég hef áhuga á öllu
því sem viðkemur hundum og hef
sótt ýmis námskeið og fyrirlestra
sem HRFÍ hefur boðið upp á í
gegnum árin.
Í 3 ár vann ég með
skapgerðarmats-hópi HRFÍ og
fékk þar réttindi sem leikmaður
(figurant). Þetta var gríðar-lega
áhugaverður tími og ég lærði
margt af þeirri vinnu um atferli og
eðli hunda.
Ég hef séð um og leiðbeint á
námskeiðum fyrir nýja hringstjóra
og ritara og undanfarin 2 ár hef ég
auk þess starfað í sýningastjórn
félagsins. Við getum verið stolt
af sýningunum okkar, umgjörð
og starfsfólkinu og sýningastjórn
vinnur ávallt að því að gera góðar
sýningar enn betri.
Fyrr á þessu ári öðlaðist ég
réttindi sem sýningadómari á
þjóðarhundinn okkar, íslenska
fjárhundinn, og hlakka til að takast
á við nýjar áskoranir í þessu nýju
hlutverki.
Sámur, blað HRFÍ, er mér hugleikið enda er það okkar helsta
málgagn og er sent til allra félaga
Hundaræktarfélagsins. Ég sat lengi
í ritnefnd félagsins og kom þar
aftur inn síðastliðið vor. Ég hef þýtt
eða skrifað hinar ýmsu greinar um
margvísleg málefni sem mér hefur
þótt eiga erindi við félagsmenn.
Félagið okkar hefur vaxið mikið
á undanförnum árum og innan
þess unnið gríðarmikið og gott
starf. Mig dreymir um öflugan
gagnagrunn aðgengilegan á
netinu þar sem hægt verður að
skoða öll úrslit vinnuprófa og
hundasýninga sem og niðurstöður
heilbrigðisprófa. Svona
gagnagrunnur kemur fyrir HRFÍ,
það er bara spurning hvenær.
Ég hef lengi starfað á hundasýningum félagsins, er með
réttindi sem hringstjóri og gef kost
á mér í vinnu í dómhring þegar
ég er ekki að sýna mína eigin
hunda. Án sjálfboðastarfs væru
sýningarnar okkar ekki mögulegar
Undistaða alls starfs innan HRFÍ
er í deildum félagsins og því þarf
að gera allt sem hægt er til að
styðja við og efla deildirnar. Stjórn
félagsins á ekki að gera allt heldur
reyna að skapa umhverfi sem gerir
starf deildanna auðveldara og
líklegra til árangurs. Fulltrúaráð
félagsins skipar þar stórt hlutverk
sem mætti nýta betur.
Við félagsmenn í HRFÍ mættum
stundum bæta samskipti okkar
á milli og hugsa í auknum mæli
út í ímynd félagsins út á við. Ef
nýjir eða mögulegir félagsmenn
verða helst varir við neikvæðni og
leiðindi þá er það ekki hvetjandi
til þátttöku í starfi félagsins eða
deilda þess. Höfum í huga að það
er hægt að segja sama hlutinn á
marga vegu. Félagið okkar verður
aldrei sterkara en við félagarnir og
því megum við aldrei gleyma.
Hundamenningin hér á landi er
í stöðugri sókn en við mætum
ennþá gamaldags viðhorfum
til hunda og hundahalds.
Viðhorfsbreytingar í samfélaginu
taka tíma og við hundaeigendur
verðum að vanda okkur, sýna
ábyrgð og vinna saman að
hagsmunamálum okkar.
Mér þykir vænt um
Hundaræktarfélag Íslands og vil
leggja mitt af mörkum til að gera
gott félag enn betra.
Aðalfundur HRFÍ
26. maí 2016
kl. 20.00
Hestheimum 14-16, Kópavogi
Sámur 1. tbl. 43. árg. maí 2016 · 9